14. júlí 2016

UNICEF sendir neyðargögn til Juba eftir átök helgarinnar

Um leið og færi gafst í gær voru fjórir flutningabílar sendir frá vöruskemmu UNICEF með neyðargögn á öryggissvæði Sameinuðu þjóðanna fyrir óbreytta borgara í Juba.

Þúsundir hafa fengið neyðaraðstoð frá UNICEF eftir að harðir bardagar brutust út í Juba höfuðborg Suður-Súdan síðustu helgi.

Um leið og færi gafst í gær voru fjórir flutningabílar sendir frá vöruskemmu UNICEF með neyðargögn á öryggissvæði Sameinuðu þjóðanna fyrir óbreytta borgara í Juba. Orkuríkum næringjarstykkjum var einnig dreift í tveimur kirkjum þar sem fólk hafði leitað sér skjóls fyrir átökunum.

„Þeir sem hafa orðið hvað verst úti þrauka við hræðilegar aðstæður,“ segir Mahimbo Mdoe, yfirmaður UNICEF í Suður-Súdan. „Fólkið þarf nauðsynlega vatn, mat og læknisaðstoð.“

Þær neyðarbirgðir sem dreift var í gær innihalda gögn til að veita börnum meðferð gegn vannæringu og hreinlætisvörur eins og sápur og vatnsbrúsa. Sjúkrapökkum ásamt leikföngum fyrir börn verður dreift í dag.

UNICEF og samstarfsaðilar vinna að fjölskyldusameiningu fyrir börn sem hafa orðið viðskila við ættingja sína á flótta undan átökunum. Áætlað er að aðstoða sem fyrst hátt í 50.000 manns sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna átaka síðustu daga.

„Við erum að bregðast við og þau viðbrögð eiga eftir að aukast, það er þó mikilvægt að við náum til allra þeirra sem þurfa á hjálp að halda og til þess þurfum við óheft aðgengi að fólki í neyð,“ sagði Mahimbo.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn