04. apríl 2016

UNICEF tekist að veita milljónum barna frá Jemen hjálp

Hvaða ríki er fátækasta ríki í Mið-Austurlöndum, með ævintýralega höfuðborg, stórmerkilegar menningarminjar og þar sem blóðug styrjöld hefur ríkt í meira en heilt ár án þess að heimsbyggðin hafi veitt því athygli? Svarið er ... Jemen.

Hvaða ríki er fátækasta ríki í Mið-Austurlöndum, með ævintýralega höfuðborg, stórmerkilegar menningarminjar og þar sem blóðug styrjöld hefur ríkt í meira en heilt ár án þess að heimsbyggðin hafi veitt því athygli? Svarið er ... Jemen.

Ástandið þar er skelfilegt. Orðið „skelfilegt“ nær varla utan um það: 80% barna í landinu þurfa á hjálpa að halda. Góðu fréttirnar eru þær að þökk sé hugsjónafólki sem er með okkur í liði - í Jemen, hér á Íslandi og víða um heim - hefur UNICEF tekist að veita milljónum barna hjálp. Frá því að átökin urðu að blóðugri styrjöld í mars í fyrra hafa UNICEF og samstarfsaðilar ...

... veitt 200.000 börnum meðferð við alvarlegri vannæringu.
... skoðað 1,2 milljón önnur börn og athugað hvort þau þurfi slíka meðferð.
... bólusett 4,7 milljónir barna gegn mænuveiki og komið þar með í veg fyrir að veikin taki sig upp í landinu.
... útvegað sjúkrahúsum og heilsugæslum lyf og sjúkragögn fyrir 400.000 manns.
... veitt 370.000 börnum sálrænan stuðning.
... frætt 470.000 manns um hættuna af ósprungnum sprengjum.
... útvegað 3,7 milljónum manna hreint vatn.
... komið 4.157 tonnum af hjálpargögnum á vettvang.



Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn