10. október 2005

UNICEF veitir 2,5 milljónum króna til hjálparstarfs í Pakistan

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur sent út 2,5 milljónir króna til neyðaraðstoðar fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan. UNICEF hefur óskað eftir 20 milljónum Bandaríkjadala (yfir einum milljarði ISK) til að geta veitt neyðaraðstoð til barna og fjölskyldna sem lifðu af jarðskjálftann.

„Ótrúlegar náttúruhamfarir hafa dunið yfir síðastliðið ár og fólk um allan heim hefur sýnt mikinn stuðning eins og dæmin sanna frá flóðasvæðunum við Indlandshaf og eftir fellibylinn við Mexíkó-flóa. Það er því einlæg von mín að fólk bregðist jafn skótt og vel við í þetta skipti og styðji þau samtök sem vinna að hjálparstarfi á svæðinu,“ sagði Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland. „Þörfin er mikil og því ákváðum við að senda út 2,5 milljónir íslenskra króna strax. Þegar svona hamfarir dynja yfir leita einstaklingar til okkar um að legga sitt af mörkum. Við viljum því benda fólki á neyðarsöfnunarreikning okkar 101-26-102040 (kt. 481203-2950).“ Einnig er hægt að styrkja starf UNICEF á jarðskjálftasvæðunum hér á síðunni.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn