01. júní 2006

UNICEF veitir neyðaraðstoð á eyjunni Jövu í Indónesíu

Nú er ljóst að tæplega 6.000 manns fórust í jarðskjálftanum sem reið yfir eyna Jövu í Indónesíu laugardaginn 27. maí. Þúsundir særðust í skjálftanum og um 200.000 manns eru taldir hafa misst heimili sín. Frá því á mánudag hefur UNICEF unnið ötullega að því að koma neyðargögnum til fórnarlamba jarðskjálftans.

Nú er ljóst að tæplega 6.000 manns fórust í jarðskjálftanum sem reið yfir eyna Jövu í Indónesíu laugardaginn 27. maí. Þúsundir særðust í skjálftanum og um 200.000 manns eru taldir hafa misst heimili sín.
Frá því á mánudag hefur UNICEF unnið ötullega að því að koma neyðargögnum til fórnarlamba jarðskjálftans. Helstu neyðargögn sem UNICEF færir fórnarlömbunum eru vatnstankar, fjölskyldu- og skólatjöld, leikjapakkar fyrir börnin, mörg hundruð plastdúkar og kerosín ofna ásamt eldunaráhöldum. Einnig eru 20.000 hreinlætispökkum dreift á svæðið sem innihalda vatnsbrúsa,fötur,sápur og vatnshreinsitöflum en hver pakki nægir handa tíu fjölskyldum.

Hjálp fyrir börn aðskilin frá foreldrunum
Á spítalanum í Bantul sem verst varð úti í Jógjakarta-héraði er stöðugur straumur fórnarlamba jarðskjálftans. Um helmingur þess fólks sem kemur á spítalann eru börn sem eru í sérstakri hættu og þurfa strax á aðstoð að halda.
Börnin geta ekki séð um sig sjálf og ef þau verða aðskilin frá foreldrunum þá eru þau mjög viðkvæm og þurfa aðhlynningar við á stundinni. UNICEF leggur ríka áherslu á að það sé strax fundið út hver börnin eru svo þau komist til fjölskyldu sinnar hið fyrsta.

Á næstu sex mánuðum mun UNICEF einblína á sálrænan stuðning og umönnun barna á eyjunni Jövu.
Helstu áherslur í því sambandi eru:
- Að veita börnum sérhæfða áfallahjálp eftir jarðskjálftann.
-Koma á fót miðstöðvum til verndar börnum þar sem þau geta bæði fengið sálrænan stuðning og fengið meðferðarúrræði í formi leikja.
-Að hindra ofbeldi og misnotkun, þar með talið mansal og barnaþrælkun.

Þess má geta að þann 30.maí, einungis þremur dögum eftir jarðskjálftann var búið að opna fyrstu miðstöðina til verndar börnum og er hún staðsett í Bantul.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn