17. febrúar 2016

Vannæring eykst vegna El Niño

Undanfarin tvö ár hafa einkennst af miklum veður sveiflum og þurrkum á svæðinu, sem er ein af afleiðingum veðurfyrirbærisins El Niño. Vegna þessa er hætta á að hungur, vatnsskortur og sjúkdómar hafi áhrif á líf milljóna barna.

Ein milljón barna í austur- og suðurhluta Afríku er í brýnni þörf fyrir aðstoð vegna alvarlegrar bráðavannæringar. Undanfarin tvö ár hafa einkennst af miklum veður sveiflum og þurrkum á svæðinu, sem er ein af afleiðingum veðurfyrirbærisins El Niño. Vegna þessa er hætta á að hungur, vatnsskortur og sjúkdómar hafi áhrif á líf milljóna barna.

„El Niño veðurfyrirbærið mun fjara út en áhrifa þess á börn á svæðinu mun gæta næstu árin,“ segir Leila Gharagozloo-Pakkala, svæðisstjóri UNICEF í austur- og suðurhluta Afríku. „Ríkisstjórnir hafa brugðist við eins og þær geta, en þetta eru fordæmalausar aðstæður. Lífsbjörg barnanna fer eftir því til hvaða aðgerða er gripið til strax í dag.“

El Niño veldur sterkum veðursveiflum sem geta haft ólíkar afleiðingar á hverju svæði fyrir sig. Þannig hefur úrkomuskortur verið síðustu tvö regntímabil í Eþíópíu, með þeim afleiðingum að sex milljón börn þurfa matvælaaðstoð, á meðan úrhelli og flóð afvöldum El Niño hafa aukið útbreiðslu kóleru í Kenía.

Regluleg framlög heimsforeldra styðja markvisst við neyðarviðbrögð UNICEF á svæðinu. Hægt er að gerast heimsforeldri hér á síðunni.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn