21. október 2019

Vatnsskortur vegna innrásar: Börn drekka mengað vatn úr grunnum brunnum

A‘llouk vatnsdælustöðin sem sér 400 þúsund manns fyrir hreinu vatni í norðausturhluta Sýrlands hefur nú verið óvirk í á aðra viku eftir innrás Tyrkja þann 9. október síðastliðinn. Fran Equiza, fulltrúi UNICEF í Sýrlandi, segir stöðina nærri átakasvæðum og að tvær aðalrafmagnslínur hennar hafi skemmst í árásum.

Á hverjum degi snertir UNICEF líf bágstaddra barna í yfir 190 löndum. Það getum við gert vegna þess að með okkur í liði er hugsjónafólk um allan heim. Margt smátt gerir eitt stórt og hvert einasta framlag skiptir máli.

21. október 2019 A‘llouk vatnsdælustöðin sem sér 400 þúsund manns fyrir hreinu vatni í norðausturhluta Sýrlands hefur nú verið óvirk í á aðra viku eftir innrás Tyrkja þann 9. október síðastliðinn. Fran Equiza, fulltrúi UNICEF í Sýrlandi, segir stöðina nærri átakasvæðum og að tvær aðalrafmagnslínur hennar hafi skemmst í árásum.

„Tæknimenn komust að dælustöðinni í fyrsta skipti í síðustu viku en tókst ekki að klára að gera við vandamálið sökum átaka,“ segir Equiza.

Bráðabirgðalausn hefur verið að tengja inn á aðra vatnsdælistöð frá Al-Himme skammt hjá en hún annar ekki þörfum allra sem á þurfa að halda. Raunar aðeins um þriðjungi. Vatnsskortur er því raunveruleiki hjá afar stórum hópi ofan á allt annað.

Í leit að vatni neyðist því stór hluti fólks að sögn Equiza að sækja sér mengað vatn í grunna brunna sem setur fyrst og fremst börn í hættu á að smitast af hinum ýmsu sjúkdómum.

UNICEF á svæðinu vinnur nú sem endranær að því hörðum höndum ásamt samstarfsaðilum og stjórnvöldum að vinna á vatnsskortinum og útvega hreint vatn.

Vinna UNICEF í síðustu viku fól meðal annars í sér að flytja 95 þúsund lítra af hreinu og öruggu vatni og tólf vatnstanka til borgarinnar Al-Hasakeh, sem verst varð úti vegna biluðu dælustöðvarinnar, sem og neyðarskýla í Tel Tamer. Þá hafa 600 rúmmetrar af vatni verið fluttir á hverjum degi til 77 þúsund flóttamanna í Al-Hol og A´reesha búðunum.

Þrátt fyrir meint vopnahlé þá hafa átök haldið áfram síðustu daga þó vissulega hafi dregið úr þeim. Það þýðir að UNICEF mun vonandi gefast færi á að flytja 16 þúsund lítra af eldsneyti að A‘llouk-stöðvarinnar svo hún komist aftur í gagnið með varamótor, þar til tekist hefur að gera við rafmagnslínurnar. Eldsneytið mun einnig hjálpa til við að auka afkastagetu Al-Himme-stöðvarinnar.

Til að styrkja þetta góða og mikilvæga starf UNICEF á svæðinu og hjálpa börnum í neyð sendu SMS-ið STOPP í númerið 1900. (1.900 kr.)

Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950

Nánari upplýsingar um hvernig þú getur hjálpað börnum í Sýrlandi hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn