Fullt var út úr dyrum á veitingastaðnum Bambus í gær þegar Filippseyingar búsettir á Íslandi skipulögðu hlaðborð með filippeyskum mat til styrktarhjálparstarfi UNICEF á hamfarasvæðinu eftir fellibylinn Haiyan. Allir miðarnir seldust upp og fólk hélt áfram að streyma að. Mörg hundruð manns mættu og stemmningin var frábær.
Kraftaverkakonurnar Maflor S. Blanchefleur, Margarita Hamatsu og Lilja Védís Hólmsdóttur voru meðal þeirra sem gerðu viðburðinn að veruleika. Hátt í 50 sjálfboðaliðar lögðu sitt af mörkum og miklu meira en það til að töfra fram þetta flotta hlaðborð. Ótal aðilar gáfu hráefni til matargerðarinnar og Bambus gaf afnotin af staðnum frítt.
Borðin svignuðu undan kræsingunum og gríðarleg vinna var hjá kokkunum að ná að elda heilt hlaðborð fyrir mörg hundruð manns. Svo mikil var aðsóknin að maturinn kláraðist sem og allir diskarnir, en Lilja brást eldsnöggt við því og skaust út í Kolaport þar sem hún reddaði átta kílóum af rækjum á veisluborðið! Kokkarnir gengu í málið og áfram var hlaðborðið stútfullt af veitingum.
Mikil fjölmiðlaathygli
Fréttastofa RÚV var á staðnum og Vera Illugadóttir talaði meðal annars við hann Stefán okkar og hana Lilju Védísi en hún er frá Filippseyjum og hefur búið á Íslandi í mörg ár.
Fréttastofa Stöðvar 2 lét sig heldur ekki vanta og Jón Júlíus Karlsson sagði meðal annars frá því að margir þeirra Filippseyinga sem búsettir eru hér á landi koma frá þeim svæðum þar sem eyðileggingin er hvað mest.
„Við erum mjög ánægð með stuðning Íslendinga," sagði Lilja Védís í fréttinni. Þar kom enn fremur fram að neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi var í gær komin yfir 15 milljónir. Eins mátti sjá myndir af viðburðinum bæði í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í dag.
Söngur og Swaggerific
Góð stemmning myndaðist í karaókísöng á hlaðborðinu og var það ekki síst unga kynslóðin sem tók sig til og tróð upp. Ótrúlega margir efnilegir söngvarar þar á ferð!
Loks kom danshópurinn Swaggerific fram og gerði mikla lukku en dansararnir gerðu garðinnn meðal annars frægan í Dans dans dans á sínum tíma. Hér á You Tube má sjá dansinn þeirra í gær.
Á Facebook síðu okkar eru nokkrar myndir frá viðburðinum.
Við hjá UNICEF á Íslandi erum öllum þeim sem komu að skipulagningu viðburðarins í gær ótrúlega þakklát fyrir aðdáunarvert framtak. Við erum snortin yfir því hversu margir mættu og hversu vel þetta lukkaðist allt saman. ÞÚSUND ÞAKKIR!
Fyrir þau sem vilja styrkja söfnunina bendum við á að hægt er að senda sms-ið BARN í númerið 1900 og gefa þannig 1900 krónur.
