Verkefnakista

Á þessari síðu finnur þú hagnýtt efni sem þú getur nýtt í réttindafræðslu, vinnu með réttindaráði eða öðrum verkefnum í Réttindaskóla- og frístund.

Markmið Réttindaskóla er að byggja upp lýðræðislegt umhverfi með því að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi.

Með þetta að markmiði eru grunnforsendur Barnasáttmálans útgangspunktur fyrir allar ákvarðanir í skóla- og frístundastarfi auk þess sem þær endurspeglast í samskiptum barna, ungmenna, kennara, frístundaráðgjafa og annarra starfsmanna.

Handbækur

Við innleiðingu Rétindaskóla- og Frístundar UNICEF er í mörg horn að líta.
Þess vegna er mikilvægt að stjórnendur og umsjónarmenn verkefnisins viti hvert á að stefna og geti haldið vel utan um starf sitt sem Réttindaskóli- eða Frístund UNICEF.

Handbók Réttindaskóla- og Frístundar

Handbók Réttindaskóla- og Frístundar er hagnýtt og myndrænt verkfæri fyrir skóla til þess að innleiða verkefnið í starf skóla, frístundaheimilis og félagsmðstöðvar.

Hagnýt ráð fyrir fundi réttindaráða

Þessu hefti er ætlað að styðja við umsjónarmenn réttindaráða í gegnum innleiðingarferlið og almennt í allri vinnu með réttindaráðinu. Heftið inniheldur leiðbeiningar um sex mismunandi fundi með réttindaráðum. þetta geta verið sex fyrstu fundir ráðsins en einnig má vel velja og hafna og dreifa fundum á fundaáætlun réttindaráðsins. Við hvetjum umsjónarmenn til þess að gefa sér tíma til þess að lesa yfir leiðbeiningarnar fyrir hvern fund og útfæra eftir því rými sem réttindaráðið fundar í hverju sinni. Eins eru hagnýt ráð fyrir umsjónarmenn í upphafi og í lok hvers fundar.

Þekktu Réttindi þín

Þekktu réttindi þín


Þekktu réttindi þín
er aðgengilegt og hnitmiðað námsefni um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Námsefnið bíður nemendum í lærdómsferðalag með það að markmiði gera sérhvert barn að sérfræðingum í réttindum sínum. Upphaflega er námsefnið hannað af UNICEF í Hollandi, í samstarfi við sérfræðinga í námsefnisgerð. Námsefnið samanstendur af:

  • Vinnubók fyrir börn
  • Handbók fyrir kennara
  • Bæklingi um Barnasáttmálann
  • Vönduðu veggspjaldi

Fræðumst og fræðum um mannréttindi

Fræðumst og fræðum um mannréttindi

Verkefnaheftið fræðum og fræðumst um mannréttindi veitir kennurum verkfæri til þess að taka fyrstu skrefin sem Réttindaskólar- og frístund í gegn um fjölbreytt verkefni sem:

  • Auka færni, þekkingu og skilning á réttindum barna.
  • Kenna nýjar og hagnýtar leiðir til að vinna með samstarfsfólki og foreldrum.
  • Hjálpa ykkur að þróa nýjar aðferðir sem vekja áhuga barna á eigin réttindum.
  • Útskýra hvernig tengja megi hugtökin réttindi barna, alheimsborgari og sjálfbæra þróun réttindi, alheimsborgara og sjálfbæra þróun.

Barnasáttmálinn í Leikskólanum

Barnasáttmálinn í Leikskólanum - Fræðsla og verkefni fyrir starfsfólk leikskóla

Barnasáttmálinn í leikskólanum er verkefnahefti með leikjum og verkefnum fyrir eldri börn í leikskóla og yngri börn í grunnskóla.