25. nóvember 2016

Viðburðir til að hjálpa vannærðum börnum

■ Mikill stuðningur við neyðarsöfnun vegna vannærðra barna ■ Styrktartónleikar í kvöld ■ „Tölfræðin segir þér ekkert um sorgina og angistina,“ segir starfsmaður UNICEF á vettvangi

Mörg þúsund manns hafa stutt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi vegna hörmungarástandsins í Nígeríu og nágrannaríkjunum þar sem hálf milljón barna er í lífshættu vegna vannæringar. Fjölmargir hafa auk þess skipulagt viðburði til styrktar neyðaraðgerðum UNICEF.

Í kvöld fara fram tónleikar á Húrra sem FM Belfast og Hermigervill standa fyrir. Allur aðgangseyrir rennur beint í neyðarsöfnunina.

Nemendur í þróunarfræði við Fjölbrautaskóla Norðvesturlands héldu kaffihúsakvöld í gærkvöldi með pub quiz, sölu á veggmyndum og fleira, til styrktar söfnuninni. Nemendur í 10. bekk í Hagaskóla standa nú fyrir söfnun í skólanum sínum og listakonan Rán Flygenring setti upp sýningu og seldi teikningar.

Fjölmargir hafa auk þess heimsótt skrifstofu UNICEF á Íslandi og gefið í söfnunina eða lagt inn á styrktarreikninginn.

„Hingað á skrifstofuna hefur fólk komið með stórar gjafir sem smáar, sem er ákaflega gleðilegt. Hvert einasta framlag skiptir máli. Sá elsti sem hefur heimsótt okkur er 87 ára og sá yngsti í leikskóla,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Neyðarsöfnunin stendur enn sem hæst. Hægt er að styrkja hana með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.000 kr) – sem jafngildir vikulangri meðferð fyrir vannært barn. Þörf er á að stórauka neyðaraðgerðir UNICEF á vettvangi.

Nærri hálf milljón barna í fjórum ríkjum í Vestur- og Mið-Afríku er í bráðri hættu vegna vannæringar og stór hluti þeirra gæti látið lífið á næstu mánuðum berist ekki hjálp.

„Tölurnar eru sláandi: Mörg hundruð þúsund börn í lífshættu vegna vannæringar og 65.000 manns sem búa við aðstæður sem svipar til hungursneyðar. En tölfræðin segir þér aðeins hvert umfang vandans er, ekkert um mannlegu hliðina á honum, sorgina eða angistina,“ segir Arjan de Wagt, yfirmaður næringarmála hjá UNICEF í Nígeríu.

„Tölurnar segja þér ekki hvernig það er að vera inni í sjúkratjaldi þar sem mæður eru með veik og vannærð börn sín. Í yfirfullu tjaldi halda tugir örvilna mæðra á veikburðum börnum sínum með vonarblik í auga. Ég hef verið í hundruðum slíkra tjalda og í hvert einasta sinn snertir það mig. Ég hugsa um mín eigin börn og hvernig það væri að vera í jafnmikilli örvæntingu. Hugsa um sívaxandi skelfinguna sem ég myndi upplifa ef ég horfði upp á börnin mín léttast og léttast þangað til þau væru einungis skinn og bein.“

Börn sem eru vannærð eru margfalt líklegri til að deyja af völdum sjúkdóma en önnur börn sem veikjast, til dæmis af malaríu, lungnabólgu og niðurgangspestum. Til að mæta þessu hefur UNICEF með hjálp heimsforeldra lagt áherslu á að styrkja grunnheilbrigðiskerfið á svæðinu, svo fólk geti sótt sér hjálp þegar börn þess veikjast.

Slík þjónusta, studd af UNICEF, nær nú til yfir 3,3 milljóna manna.

Ástandið hvað varðar vannæringu barna er verst í norðausturhluta Nígeríu þar sem talið er að nærri 75.000 vannærð börn muni láta lífið fái þau ekki meðferð. Það eru fleiri en 200 börn á dag.

Hægt er að styrkja neyðarhjálp UNICEF með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.000 kr).

Einnig er hægt að styrkja neyðarsöfnunina hér eða með því að leggja inn á neyðarreikninginn: 701-26-102050 (kt. 481203-2950).

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn