28. mars 2006

Vinningshafi Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi styrkir UNICEF

UNICEF Ísland barst óvæntur styrkur frá vinningshafa Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi, Hjalta Vigfússyni 12 ára, að upphæð 15 þúsund krónur. Er það UNICEF Ísland sérstaklega mikill heiður að veita þessum styrk móttöku þar sem Stóra upplestrarkeppnin vinnur að því að efla vitund og styrk ungmenna líkt og Barnahjálpin gerir víðsvegar um heiminn.

UNICEF Ísland barst óvæntur styrkur frá vinningshafa Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi, Hjalta Vigfússyni 12 ára, að upphæð 15 þúsund krónur. Er það UNICEF Ísland sérstaklega mikill heiður að veita þessum styrk móttöku þar sem Stóra upplestrarkeppnin vinnur að því að efla vitund og styrk ungmenna líkt og Barnahjálpin gerir víðsvegar um heiminn. Styrknum verður varið til verkefna UNICEF en meðal þeirra er að efla menntun barna, skapa vettvang þar sem börn fá að segja sínar skoðanir og hlustað er á þau, veita ungmennum tækifæri á að koma skilaboðum sínum á framfæri í útvarpi og fjölmiðlum og fleira í þeim dúr.

UNICEF Ísland hvetur íslensk ungmenni til að taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn