18. október 2004

Vinnusmiðja í gerð einnar-mínútu myndbanda hefst á Íslandi

Tuttugu ungmenni frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi eru samankomin í Reykjavík til þess að vinna að framleiðslu einnar-mínútu myndbanda um lýðræði og þátttöku ungs fólks í samfélaginu. UNICEF Ísland og menntamálaráðuneytið standa fyrir vinnusmiðjunni sem stendur yfir þar til á fimmtudaginn 21. október.

Myndböndin verða sýnd í vikunni á ráðstefnu Norrænu ráðherranefndarinnar um „Menntun og þátttöku ungs fólks“ sem haldin verður á Selfossi.
Norrænu sjónvarpsstöðvarnar RÚV, SVT í Svíþjóð og YLE á Finnlandi munu framleiða 25 mínútna heimildarmynd um vinnusmiðjuna og verður hún sýnd á sjónvarpsstöðvunum síðar á árinu.

Vefsíða einnar-mínútu myndbandanna er http://www.theoneminutesjr.org

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn