17. nóvember 2016

Yfir 5.000 manns hafa stutt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi

Yfir 5.000 manns hafa stutt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi vegna hörmunganna sem nú ríkja í Nígeríu og nágrannaríkjunum. Fleiri en 200 börn á dag látast þar úr vannæringu. „Það er frábært að finna þennan stuðning frá Íslandi. Hann skiptir miklu máli. Staðan hér er grafalvarleg, börn eru í lífshættu og við getum hjálpað þeim,“ segir Patrick Rose, upplýsingafulltrúi á svæðisskrifstofu UNICEF í Vestur- og Mið-Afríku.

Yfir 5.000 manns hafa stutt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi vegna hörmunganna sem nú ríkja í Nígeríu og nágrannaríkjunum. Fleiri en 200 börn á dag látast þar úr vannæringu.

„Það er frábært að finna þennan stuðning frá Íslandi. Hann skiptir miklu máli. Staðan hér er grafalvarleg, börn eru í lífshættu og við getum hjálpað þeim,“ segir Patrick Rose, upplýsingafulltrúi á svæðisskrifstofu UNICEF í Vestur- og Mið-Afríku.

Níu milljónir króna hafa safnast hér á landi.

„Við höfum ekki mikinn tíma og verðum að nýta hann vel. Þess vegna skiptir svo miklu máli að fá svona marga í lið með okkur, eins og núna á Íslandi. Framlögin eiga eftir að bjarga lífi barna,“ segir Patrick.

Neyðarsöfnunin er enn í fullum gangi og hægt að styrkja hana með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.000 kr). Neyðin er gríðarleg og þörf á að stórauka aðgerðir UNICEF.

Framlögin fara í að meðhöndla vannærð börn, veita veikum börnum lyf og styðja næringarmiðstöðvar vítt og breitt um svæðið. Áhersla er einnig lögð á að fyrirbyggja að fleiri börn verði vannærð.

Með réttri meðhöndlun í tæka tíð má koma í veg fyrir 99% dauðsfalla hjá vannærðum börnum á svæðinu

Hálf milljón barna í Nígeríu, Tsjad, Níger og Kamerún er í lífshættu vegna vannæringar. Ástandið í Borno-héraði í norðausturhluta Nígeríu er það slæmt að það kemur meira að segja reyndustu næringarsérfræðingum UNICEF á óvart. Héraðið er á stærð við Ísland og tölur þaðan benda til þess að ástandið jaðri við hungursneyð á ákveðnum stöðum.

„Það er hrollvekjandi því þetta þýðir að mikill fjöldi fólks er í hættu á að deyja beinlínis úr hungri. Við sjáum ekki svona alvarlega stöðu annars staðar í heiminum núna hvað varðar matarskort,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Ástæða neyðarinnar er meðal annars skortur á uppskeru, hækkandi matvælaverð og stórfelldur fólksflótti vegna árása vígahreyfingarinnar Boko Haram.

Börn á aldrinum 6 mánaða til 5 ára eru í mestri hættu. Þar af eru börn 6 mánaða til 2 ára viðkvæmust. Þau eru fyrst til að láta lífið. UNICEF leggur nú allt kapp á að ná til barna sem þjást af vannæringu.

Hægt er að styrkja neyðarhjálp UNICEF með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.000 kr). Eitt sms í jafngildir sem dæmi vikulangri meðferð fyrir barn sem þjáist af vannæringu.

Einnig er hægt að styrkja neyðarsöfnunina hér eða með því að leggja inn
á neyðarreikninginn: 701-26-102050 (kt. 481203-2950).

Frekari upplýsingar um ástandið: www.unicef.is/nigeria

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn