05. ágúst 2026

UNICEF fordæmir árásir sem kosta börn lífið í Úkraínu og Rússlandi

Yfirlýsing UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vegna harðnandi átaka í stríðinu

Undanfarið hafa borist tilkynningar af því að enn á ný séu börn að verða fórnarlömb harðnandi átaka milli Rússa og Úkraínumanna. Beggja vegna landamæranna berast fréttir af því að börn séu að láta lífið og særast í árásum stríðandi fylkinga. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur birt eftirfarandi yfirlýsingu vegna þessa:

„Síðustu daga hafa börn enn á ný verið drepin eða særð í árásum í Rússlandi og víðs vegar um Úkraínu.

Í Rússlandi bárust fregnir af því að 13 ára stúlka hafi látið lífið og tvær stúlkur, 7 og 9 ára, særst í drónaárás nærri leikvelli í Belgorod-héraði á sunnudag. Þrjú börn voru meðal þeirra sjö sem voru drepin í árás á Krasnodar í fyrradag, þar sem á fjórða tug særðust.

Í Úkraínu hafa að minnsta kosti sex börn verið drepin á rúmri viku í árásum: átta ára drengur og minnst þrjú börn ásamt fjölskyldum þeirra í Dnipropetrovsk. Í Sumi-héraði voru tvær stúlkur, 5 og 10 ára, drepnar. Minnst 19 börn hafa særst í árásum á þessu tímabili.

„Leikvöllur. Strönd. Heimili. Börn eiga rétt á því að vera örugg á stöðum þar sem þau búa og leika sér, sama hvar þau eru.

UNICEF ítrekar ákall sitt til stríðandi fylkinga um að þær standi við skuldbindingar sínar gagnvart alþjóðlegum mannréttindalögum, þar á meðal að vernda börn og nauðsynlega borgaralega innviði. Árásir sem drepa og særa börn verður að stöðva.“

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn