Yfir helmingur íbúa á Gaza eru börn og börn eru sérstaklega viðkvæm í þeim aðstæðum sem skapast við vopnuð átök. Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu þróunaraðstoðar (OCHA) telur að börn séu meðal þeirra sem látist hafa og særst vegna nýliðinna loftárása.
Það er nauðsynlegt að neyðaraðstoð, þar á meðal matur, lyf og sjúkragögn, fái greiðan aðgang að Gaza til að hægt sé að mæta brýnum þörfum barna og kvenna á svæðinu.
