14. mars 2021

10 ár af stríði í Sýrlandi

Í dag, 15. mars, eru tíu ár liðin síðan Sýrlandsstríðið hófst. Um 90% barna í Sýrlandi á aðstoð að halda sem er um 20% aukning á einu ári.

Í dag, 15. mars, eru 10 ár liðin síðan Sýrlandsstríðið hófst. Áratugur af árásum, efnahagshrun og heimsfaraldur kórónaveirunnar hafa skapað eina verstu mannúðarkrísu heimsins í dag sem heldur áfram að bitna verst á börnunum. Eftir 10 ár af stríði þurfa um 90% barna í Sýrlandi á aðstoð að halda sem er um 20% aukning á einu ári. Á þessum tíu árum hafa sex milljónir barna fæðst í Sýrlandi og í flóttamannabúðum í nágrannaríkjunum. Þau þekkja ekkert nema stríð.

„Á hverjum einasta degi síðastliðin tíu ár hafa gróf brot verið framin á réttindum barna. Þau hafa verið drepin, særð alvarlega, notuð í vopnuðum átökum og skólarnir þeirra sprengdir í loft upp. Ótal börn hafa drukknað á flótta frá hörmungunum. Börn bera aldrei ábyrgð í stíði en það eru þau sem bera mestan skaða af átökunum,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi.

Þau eiga minningar frá síðustu árum sem engin börn ættu að þurfa að upplifa fallnir ástvinir, skólinn sem er ekki lengur til og hættulegur flótti yfir til Evrópu. Sjá má minningar barna frá Sýrlandi í myndbandi hér.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur veitt milljónum barna frá Sýrlandi neyðarhjálp síðan stríðið hófst. Það hefði ekki verið hægt án víðtæks stuðnings almennings um allan heim, þar á meðal á Íslandi – bæði frá heimsforeldrum og þeim sem stutt hafa neyðarsöfnunina okkar.

Hægt er að hjálpa með því að senda sms-ið STOPP í nr 1900 (1.900 krónur) eða með því að styðja hér.

Tíföldun fólks á flótta

Ástandið er slæmt um allt Sýrland. Á síðasta ári hefur verð á matarkörfunni hækkað um meira en 230 prósent og fjölskyldur eiga erfitt með að ná endum saman. Innan Sýrlands þarfnast 5 milljónir barna mannúðaraðstoðar. Um 2,6 milljónir barna eru á vergangi og hafa neyðst til að flýja heimili sín og búsetuúrræði margoft og annar eins fjöldi hefur flúið yfir landamærin til nágrannaríkja og búa nú í flóttamannabúðum. Þetta er tíföldun fólks á flótta frá Sýrlandi síðan 2012 sem setur aukið álag á nágrannasamfélögin sem eiga í erfiðleikum fyrir, einsog til dæmis Líbanon.

Einn af hverjum þremur skólum í Sýrlandi er í dag ónothæfur. Yfir 700 skólar hafa verið sprengdir upp, en það er meira en allir leikskólar, grunnskólar, framhaldsskólar og háskólar á Íslandi samanlagt. Auk þess eru skólabyggingar notaðar í hernaðarlegum tilgangi eða til að hýsa fjölskyldur á flótta. Rúmlega 3 milljónir barna frá Sýrlandi eru ekki í skóla lengur, þar af um 40% stúlkur.

Einna verst er staðan í norðurhluta landsins. Í norðvesturhlutanum eru milljónir barna á vergangi og hafa margar fjölskyldur flúið mörgum sinnum á síðustu árum. Veturinn hefur verið erfiður sem gerir lífið nánast óbærilegt í köldum tjöldum og skýlum. Í norðausturhlutanum eru Al-Hol búðirnar þar sem búa nú um 27 þúsund börn af a.m.k 60 þjóðernum við skelfilegar aðstæður.

UNICEF á Íslandi í neyðarsöfnun

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur verið í Sýrlandi fyrir stríð og verður þar áfram.  Neyðaraðgerðir UNICEF í Sýrlandi og nágrannaríkjunum leggja áherslu á að ná til allra barna sem þurfa hjálp og þrýsta um leið á stríðandi aðila og alþjóðasamfélagið að vinna að friðsamlegri lausn.

„Fyrst og fremst þarf að tryggja það að börn séu örugg, fái vernd gegn ofbeldi og þá þjónustu sem þau eiga rétt á og þurfa til að lifa af og eiga möguleika á að byggja upp samfélagið sitt eftir að stríðinu lýkur,“ segir Steinunn.

UNICEF og samstarfsaðilar veita börnum og fjölskyldum þeirra í Sýrlandi og í nágrannaríkjum Sýrlands sálræna aðstoð og fjárhagslegan stuðning, útvega hreint vatn, bólusetja börn, styðja formlega og óformlega menntun barna og ungmenna og meðhöndla börn við vannæringu svo nokkuð sé nefnt. Auk þess vinnur UNICEF að því að bæta aðgengi að grunnþjónustu fyrir fötluð börn og útvega hjálpartæki.

Það er enginn sigurvegari í þessu stríði. Það er löngu kominn tími til að stríðandi aðilar leggi niður vopn og setjist að samningaborðinu. Friður er eina leiðin út úr þessari martröð. UNICEF ákallar alla stríðandi aðila, áhrifavalda þeirra og alþjóðasamfélagið allt að tryggja tafarlausa pólitíska lausn á stríðinu í Sýrlandi. Auk þess krefst UNICEF eftirfarandi;

  • Styðja þarf börn sem hafa verið tekin inn í vopaða hópa að aðlagast samfélögum sínum á ný og flytja börn erlendra ríkisborgara á öruggan hátt til sinna heimalanda;
  • Binda þarf enda á árásir á börn og óbreytta borgara, skóla, spítala, heilsugæslur og vatnsveitur;
  • Endurnýja þarf ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um aðstoð yfir landamæri til að hjálparstofnanir geti áfram flutt lífsnauðsynleg hjálpargögn yfir til Sýrlands;
  • Halda þarf áfram að styðja hjálparsamtök með fjárframlögum til þess að hægt sé að veita þeim milljónum barna sem þurfa lífsnauðsynlega neyðaraðstoð.

UNICEF á Íslandi hefur verið í neyðarsöfnun fyrir börn frá Sýrlandi í fjölda ára. Við þökkum öllum þeim fjölmörgu einstaklingum og fyrirtækjum sem hafa stutt söfnunina og með því hjálpað börnum í Sýrlandi sem búa við ólýsanlega neyð. Hægt er að hjálpa með því að senda sms-ið STOPP í nr 1900 (1.900 krónur) eða með því að styðja hér.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn