„Drónaárásir og þurrkar sækja að börnum í Súdan úr tveimur áttum. Við höfum aldrei séð aðra eins atlögu að lífi og framtíð barna í sögu landsins.
Síðustu viku októbermánaðar leið ekki einn einasti dagur án þess að vopnaður dróni réðist á raforkuver í Súdan. Allt að 15 raforkuver urðu fyrir árásum í mánuðinum. Á sama tíma og alþjóðlegar viðvaranir berast um áhrif El Niño-veðurfyrirbærisins eru afleiðingar þess þegar farnar að koma fram í Súdan. Jafnvel þótt rigningar komi seint geta þær ekki bætt fyrir þann skaða sem þegar hefur orðið. Tíminn til sáningar fyrir kornuppskeruna 2026–2027 er að mestu liðinn. Drónaárásunum linnir hins vegar ekki.
Ítrekaðar árásir hafa beinst að mikilvægum innviðum raforkukerfisins víða um Súdan. Árásirnar hafa færst yfir á fleiri landsvæði og fylgja hver annarri með skömmu millibili. Þær marka alvarlega stigmögnun árása á borgaralega innviði.
Leyfið mér að útskýra hvers vegna samspil drónaárása og þurrka er svo lífshættulegt fyrir börn: Í Súdan er rafmagn forsenda þess að fólk hafi aðgang að vatni. Þegar ráðist er á raforkuver stöðvast vatnsdælur og vatnshreinsun leggst af. Fjölskyldur neyðast til að reiða sig á dýrari og óöruggari vatnsból. Sjúkdómar breiðast út. Við sjáum nú aftur staðbundin kólerufaraldursbrot í sumum þeirra samfélaga sem erfiðast er að ná til, meðal annars meðal fjölskyldna á vergangi innan eigin lands.
Kalda keðjan, sem tryggir að bóluefni og lyf haldist nothæf alla leið á áfangastað, er einnig í hættu. Bændur missa aðgang að áveituvatni þar sem vatnsdælur ganga fyrir rafmagni, auk þess sem skortur á eldsneyti er orðinn verulegur. Uppskeran bregst, verðlag hækkar stöðugt og sífellt fleiri fjölskyldur hafa ekki lengur efni á að kaupa mat. Hættulegur vítahringur fer af stað.
Allt þetta gerist á sama tíma og talið er að um 825.000 börn undir fimm ára aldri í Súdan muni þjást af alvarlegri bráðavannæringu á þessu ári. Þetta er sú tegund vannæringar sem getur dregið börn til dauða.
Tvö af hverjum þremur börnum sem hafa fallið í ár í Súdan hafa orðið fórnarlömb drónaárása. Árásirnar færa stríðið inn á svæði sem áður voru talin örugg. Fólk hér talar um þrennt sem skiptir mestu máli: öryggi, menntun og vatn. Vopnaðir drónar svipta fólk öllu þessu þrennu.
Í síðustu viku hitti ég börn í flóttamannabúðum sem hafa misst handleggi og hendur í stríðinu. Burie, unglingur sem missti báðar hendur í sprengjuárás og býr nú í tjaldi, sagði mér:
„Ég verð að sætta mig við þetta eins og það er.“ Á morgnana stundar hann nám í gegnum netið en síðdegis tínir hann gras handa búfénaðinum, þrátt fyrir að hafa aðeins handleggsstúfa. Vinir hans hjálpa honum.
Þetta er veruleikinn í Súdan. Ástandið er linnulaust og óbærilegt, en þrátt fyrir allt styður súdanska þjóðin hvert við annað.
Aðgerðir eru í gangi og árangurinn er eftirtektarverður. UNICEF og samstarfsaðilar samtakanna vinna náið með heimamönnum og hafa veitt hundruðum þúsunda barna meðferð við alvarlegustu tegund vannæringar. Við höfum stuðlað að því að meira en 2,5 milljónir manna hafi fengið aðgang að heilbrigðisþjónustu og bólusett milljónir barna gegn lífshættulegum sjúkdómum. Við höfum gert við vatnsveitukerfi og komið upp sólarorkulausnum til að tryggja áframhaldandi aðgang nærri átta milljóna manna að hreinu vatni. Við höfum hjálpað milljónum barna að snúa aftur til náms. Þá höfum við náð til 1,5 milljóna barna og fjölskyldna þeirra með barnavernd, geðheilbrigðisþjónustu og sálfélagslegum stuðningi.
En þegar svo margar krísur skella á samtímis er álagið á öll kerfi orðið gríðarlegt. Fjármögnun viðbragðs UNICEF í Súdan nemur aðeins þriðjungi þess sem þörf er á. Fólk í landinu sýnir ótrúlegan styrk og seiglu en ekki er hægt að byggja viðnámsþrótt samfélaga eingöngu á góðum vilja.
UNICEF kallar eftir þrennu.
Í fyrsta lagi verður að binda enda á ofbeldi gegn börnum og árásir á raforkuver, vatnsveitukerfi og þá borgaralegu innviði sem fólk reiðir sig á.
Í öðru lagi þarf að tryggja öruggan aðgang mannúðaraðstoðar yfir víglínur. Þeir sem hafa áhrif verða að beita sér fyrir vernd barna og almennra borgara og stöðva vopnasendingar sem verða börnum að bana og valda þeim alvarlegum meiðslum.
Í þriðja lagi þarf tafarlaust, viðvarandi og sveigjanlegt fjármagn til að halda nauðsynlegri grunnþjónustu gangandi, þar á meðal aðgangi að hreinu vatni, meðferð fyrir börn með vannæringu, heilbrigðisþjónustu, menntun og vernd barna.
Í þrjú og hálft ár hefur þjáningum barna í Súdan verið mætt með þögn. Hvað þarf eiginlega til? Þurfa börn í Súdan að standa frammi fyrir algerri ógn við líf sitt áður en umheimurinn tekur eftir þeim? Sú ógn er þegar orðin að veruleika. Þegar rafmagnið fer stöðvast vatnsdælurnar. Þegar rigningin bregst verður maturinn uppurinn. Börn í Súdan standa nú frammi fyrir hvoru tveggja samtímis. Ef heimurinn bíður eftir því að ástandið versni enn frekar mun hann bíða við grafir barnanna.“

