15. mars 2023

12 ár af stríði: UNICEF varar yfir hættuástandi í næringu sýrlenskra barna

Átök og jarðskjálftar aukið gríðarlega á neyð í Sýrlandi – Framtíð milljóna barna hangir á bláþræði

Mæðgin í flóttamannabúðum í Raqqa í Sýrlandi sækja sér vatn. Mynd/UNICEF

Í dag eru tólf ár síðan stríðið í Sýrlandi hófst og milljónir sýrlenskra barna eru í stóraukinni hættu á vannæringu segir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Ekkert lát er á átökum stríðandi fylkinga í landinu og jarðskjálftarnir stóru sem urðu í síðasta mánuði hafa enn aukið neyð almennings.

Frá upphafi átakanna í Sýrlandi þann 15. mars 2011 hafa nærri 13 þúsund börn látið lífið og særst samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna. Heil kynslóð barna hefur verið svipt barnæsku sinni og þekkir ekkert annað en átök, ótta og sífelldan flótta undan árásum.

Áætlað er að ríflega 609 þúsund sýrlensk börn undir fimm ára aldri glími við vaxtarröskun vegna langvarandi vannæringar sem getur haft óafturkræf áhrif á líkamlegan- og andlegan þroska þeirra til frambúðar. Tíðni bráðavannæringar hefur sömuleiðis aukist. Á milli áranna 2021 og 2022 varð 48 prósenta aukning í tilfellum alvarlegrar bráðavannæringar hjá börnum á aldrinum 6-59 mánaða. Vannæring af því tagi veikir ónæmiskerfi barna og eru þau ellefu sinnum líklegri til að láta lífið vegna ýmissa veikinda en ella.

Hin langdregnu átök gera það einnig að verkum að efnahagur landsins er í molum og lifa nú 90 prósent íbúa í fátækt. Verst koma þessar efnahagsþrengingar niður á velferð og réttindum barna.

Næringarkrísa og heilbrigðiskerfi í molum fyrir skjálftana

Fyrir jarðskjálftana stóru, sem urðu 6. febrúar síðastliðinn, þurftu ríflega 3,7 milljónir sýrlenskra barna um allt land á næringaraðstoð að halda og nærri 7 milljónir á mannúðaraðstoð að halda. Ljóst er að neyðin eftir hamfarirnar hefur stóraukist.

Fyrir hamfarirnar skorti einnig ríflega 6,8 milljónir sýrlenskra barna aðgengi að grunnheilbrigðisþjónustu þar sem helmingur heilbrigðiskerfa landsins eru ekki starfhæf en áætlað er að um 20 þúsund læknar séu eftir í landinu. Fjölskyldur þurfa því reglulega að annað hvort fresta mikilvægum læknisheimsóknum eða leggja á sig löng og hættuleg ferðalög til að nálgast heilbrigðisþjónustu – ef þau hafa efni á. Ofan á öll þessi ósköp bættist síðan kólerufaraldur síðastliðið haust sem enn hefur sett aukið álag á brothætt heilbrigðiskerfið. UNICEF býst við því að aðgengi að heilbrigðisþjónustu muni versna enn á þessu ári.

 Líf á bláþræði

„Sýrlensk börn geta ekki beðið lengur. Eftir áralöng stríðsátök og tvo skelfilega jarðskjálfta hangir framtíð milljóna barna á bláþræði,“ segir Adele Khodr, svæðisstjóri UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. „Það er á sameiginlega ábyrgð okkar allra að sýna þessum börnum að framtíð þeirra skiptir máli og sé líka okkar forgangsatriði. Við verðum að bregðast við þörfum barna hvar sem þau eru í Sýrlandi og styðja við þau kerfi sem veita þá mikilvægu þjónustu sem þau þurfa svo nauðsynlega á að halda,“ segir Khodr.

Aldrei fleiri börn þurft á aðstoð okkar að halda

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, vinnur þrotlaust að því ásamt samstarfsaðilum að bæði greina vannæringu barna tímanlega sem og að veita og auka við lífsbjargandi meðferðarþjónustu við vannærð börn.

UNICEF útvegar einnig mikið magn hjálpargagna, sjúkragagna og heilbrigðisþjónustu, aðgengi að hreinu vatni og hreinlætisþjónustu til að auka lífslíkur barna í neyð.

 Löngu áður en núverandi átök hófust í Sýrlandi fyrir tólf árum og allar götur síðan hefur UNICEF verið á vettvangi og til staðar fyrir sýrlensk börn. Aldrei fyrr hafa fleiri börn þurft á aðstoð að halda. 

UNICEF á Íslandi hefur frá upphafi átakanna haldið úti neyðarsöfnun fyrir börn í Sýrlandi. Hægt er að styðja við verkefni UNICEF í þágu sýrlenskra barna hér.

Fleiri
fréttir

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira
Fara í fréttasafn