„Þeirra líflína er að við munum eftir þeim,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í viðtali í sjónvarpsfréttum RÚV um helgina. Tilefnið var að ár er síðan vopnahlé komst á á Gaza-ströndinni.
Aðspurð um stöðuna á Gaza segir Birna hana ekki góða.
„En við vinnum hörðum að því að fólk geti þraukað þennan kalda vetur sem framundan er. Nánast allir hafast við í tjöldum eða lélegum skýlum. Við vitum að vatnslagnir eru í algjöru ólagi. Þannig að það verða líklega flóð – bæði vatn og skólp sem mun flæða um svæðið. Við erum að hamast við að lágmarka skaðann af þessu og tryggja fólki betra skjól og hlýjan fatnað.“
----
Börn á Gaza þurfa þinn stuðning. Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi:
Hringdu í 907-3014 og gefðu 3.000 krónur.
----------------
Birna sagði aðspurð það vera gleðiefni að skólastarf hafi hafist á ný í fyrsta sinn í þrjú ár.
„Sem betur fer. Við fengum ekki að flytja inn einn einasta blýant eða stílabók fyrr en í febrúar á þessu ári en núna er um hálf milljón barna að snúa aftur í skóla þar sem þau fá auk menntunar, sálrænan stuðning, næringu, hreinlæti og það sem þau þurfa helst.“
UNICEF fær enn að flytja inn hjálpargögn
Í ljósi þess að Ísraelar hafa haldið Gaza-ströndinni í heljargreipum spyrja margir sig hvort neyðaraðstoð og nauðsynlegar birgðir séu að komast inn á svæðið. Birna segir svo vera en staðan sé erfið og UNICEF eini aðilinn sem fái að fara inn á svæðið.
„Það er ennþá mjög erfitt. Mörg hjálparsamtök komast ekki með fólk eða vörur inn á svæðið þannig að UNICEF er orðinn einn stærsti mannúðaraðilinn á svæðinu. Við fáum enn að fara með fólk inn og út, en það gengur mjög erfiðlega að koma hjálpargögnum inn.“
Birna segist aðspurð vona að alþjóðasamfélagið gleymi ekki Gaza.
„Það vona ég að gerist ekki. Þó krísur séu í veldisvexti í heiminum þá erum við þarna með tvær milljónir manna sem eru í landfræðilegu búri sem er stöðugt verið að minnka og gera aðstæður þeirra ómennskari. Þeirra líflína er að við munum eftir þeim, að við fjármögnum hjálpina sem þau þurfa og við ýtum á stjórnmálamennina að tryggja að friðurinn sem átti að koma með vopnahléinu komi fyrir íbúana á Gaza.“
Horfa má á viðtalið við Birnu í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
-----------------------
Börn á Gaza þurfa þinn stuðning. Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi:
Hringdu í 907-3014 og gefðu 3.000 krónur.
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102015 / Kennitala: 481203-2950
Við tökum einnig við frjálsum framlögum í gegnum AUR appið í númerið: 123 789 6262 eða @unicef.
--------------------
Fréttina „Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri“ má lesa hér á RÚV.is.
Umfjöllun RÚV um ár af vopnahléi á Gaza má sjá í heild sinni hér í spilara á RÚV.is
