27. mars 2026

19.000 börn hrakin á flótta daglega í Líbanon

Á þremur vikum hafa 20% þjóðarinnar neyðst til að flýja heimili sín. Ein milljón er á vergangi og afleiðingarnar fyrir börn eru alvarlegar.

Hin tveggja ára gamla Fatima er hér í fangi hinnar 12 ára gömlu Fadak í Omar Farouk-skólanum í Beirút þar sem hundruð flóttamanna hafa leitað skjóls að undanförnu. Mynd: UNI964788/Choufany

„Á innan við mánuði hafa 20% líbönsku þjóðarinnar verið hrakin á flótta. Á þessum þremur vikum hafa rúmlega 370 þúsund börn neyðst til að flýja heimili sín í Líbanon. Að meðaltali 19.000 stúlkur og drengir á dag, sem þurfa að flýja fyrir lífi sínu.“

Þannig hefst ávarp Marcoluigi Corsi, fulltrúa UNICEF í Líbanon, sem hann flutti á blaðamannafundi í Genf í dag.

„Um allt land eru nú meira en ein milljón manna á vergangi, margir í annað, þriðja eða jafnvel fjórða skiptið. Þetta er skyndilegur og óreiðukenndur fólksflótti sem slítur fjölskyldur og samfélög í sundur með afleiðingum sem mun gæta lengi eftir að ofbeldinu linnir.

Þú getur styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Mið-Austurlöndum hér.

„Andleg og tilfinningaleg byrði sem hvílir á börnum í Líbanon er agaleg.  Þau voru vart búin að jafna sig eftir síðasta áfall fyrir fimmtán mánuðum þegar þau eru á ný rifin upp með rótum í skugga ofbeldis. Þessi linnulausa hringrás sprengjuárása og flótta eykur verulega á sálræn sár þeirra, festir í sessi djúpstæðan ótta og ógnar tilfinningalegri velferð þeirra til frambúðar.

„Í athvarfi í Beirút hitti ég 11 ára stúlku, Zeinab, sem hafði flúið með fjölskyldu sinni frá suðurhluta borgarinnar í sama skóla og þau leituðu skjóls í fyrir 18 mánuðum. Hún sagðist aldrei hafa ímyndað sér að hún myndi lifa þetta aftur — sofa innan um fjölda fólks og hlusta á sprengingar og skothríð nánast á hverju kvöldi. Hún þráir ekkert heitar en að komast heim, fara aftur í skólann og lifa sínu eðlilega lífi.

„Í dag leita yfir 135.000 innanlandsflóttamenn skjóls í meira en 660 sameiginlegum athvörfum, margir þeirra börn. Aðstæður versna stöðugt. Margar fjölskyldur hafast við í óformlegum, þröngum og óöruggum aðstæðum. Efnahagskreppa landsins og veikburða innviðir höfðu þegar dregið úr getu þess til að mæta grunnþörfum; nú eru þeir að kikna undan álaginu.

„Grunnþjónusta sem börn reiða sig á til að lifa af og byggja framtíð sína hefur raskast verulega. Á svæðum eins og Bekaa og Baalbek hafa loftárásir eyðilagt mikilvægar vatnsgeymslur og dælustöðvar og þannig svipt tugþúsundir manna aðgangi að hreinu vatni. Jafnframt hafa um 435 opinberir skólar nýttir sem athvörf, sem hefur skyndilega rofið skólagöngu meira en 115.000 nemenda.

Þú getur styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Mið-Austurlöndum hér.

„Mannlegur kostnaður þessarar stigmögnunar er skelfilegur. Hingað til hafa að minnsta kosti 121 barn látið lífið og 395 særst. Þau sem lifa árásirnar af vakna upp við skelfilegan nýjan veruleika og neyðarástand. Fjölskyldur flýja með ekkert nema fötin sem þær standa í og neyðast til að flytja sig margoft á örfáum dögum þegar nýjar brottflutningsskipanir eru gefnar út.

„Á sama tíma hafa mikilvægir innviðir eins og sjúkrahús, skólar, brýr, vegir, vatns- og fráveitukerfi ítrekað orðið fyrir árásum, skemmdum eða eyðileggingu.

„UNICEF starfar á vettvangi allan sólarhringinn í samstarfi við samstarfsaðila og innlend kerfi til að styðja börn á flótta, í athvörfum og á svæðum sem erfitt er að ná til. Á undanförnum vikum hefur neyðarviðbragðskerfi samtakanna náð til yfir 167.000 flóttamanna með nauðsynleg hjálpargögn og vetrarbúnað.

Sjúkrahúsum hafa verið afhent meira en 140 tonn af lífsnauðsynlegum sjúkragögnum og 40 heilsugæslueiningar hafa verið virkjaðar til að tryggja að börn og fjölskyldur í athvörfum hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu. Einnig er veittur neyðarstuðningur við vatns- og hreinlætismál í nærri 190 athvörfum, auk þess sem unnið er að því að vernda framtíð barna með því að styðja menntayfirvöld við að koma á fót fjarnámi og skipuleggja tímabundin námsrými.

„Hins vegar getur mannúðaraðstoð ein og sér ekki leyst þessa neyð. Geta til neyðarviðbragðs hefur veikst verulega vegna ítrekaðra árása á sjúkraflutningamenn og heilbrigðisstarfsfólk, og þúsundir fjölskyldna eru enn einangraðar á svæðum sem erfitt er að komast til vegna öryggisáhættu og skorts á samgöngum.

„Í þessum átökum sem öðrum eru það börn sem gjalda mest fyrir þau. Brýnt er að tryggja óhindraðan aðgang mannúðaraðstoðar að öllum sem á henni þurfa að halda. Kallað er eftir tafarlausri stöðvun árása á borgaralega innviði, þar á meðal skóla, sjúkrahús og vatnskerfi. Umfram allt þurfa þau 370.000 börn sem eru á flótta sárlega á tafarlausu vopnahléi að halda. Þau þurfa að hætta að flýja og fá að lifa lífi barna, eins og þeim ber. 

Þú getur styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Mið-Austurlöndum hér.

Fleiri
fréttir

27. mars 2026

19.000 börn hrakin á flótta daglega í Líbanon
Lesa meira

27. mars 2026

Vannæring ógnar lífi milljóna barna í Sómalíu
Lesa meira

19. mars 2026

Ungir bræður og foreldrar þeirra skotnir til bana á Vesturbakkanum
Lesa meira
Fara í fréttasafn