19. nóvember 2026

Að minnsta kosti 64 börn hafa verið drepin og 64 særst í Jemen

Harðnandi átök skerða aðgang barna að heilbrigðisþjónustu, hreinu vatni, matvælum og menntun. Borgin Taiz er í auknum mæli einangruð.

Ung stúlka sækir sér hreint drykkjarvatn í Al-Firdous flóttamannabúðunum í Aden. 17,8 milljónir Jemena skortir aðgengi að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu. Mynd: UNICEF/UN0927021/ALfilastini 

Minnst 64 börn hafa verið drepin og 64 særst í Jemen frá því átök hörðnuðu þann 3. september síðastliðinn. Talið er að mannfall muni aukast haldi átök áfram í og við þéttbýli, einkum í Taiz og Lahj.

„Fjölgun barna sem eru drepin eða særð í Jemen er hræðileg. Þetta verður að stöðva,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Á bak við hverja tölu er barn sem hefur misst lífið eða mun búa við afleiðingar sára sinna alla ævi.“

Átökin hafa einnig haft alvarleg áhrif á grunnþjónustu og innviði sem börn reiða sig á. Að minnsta kosti sjö skólar og 28 heilbrigðisstofnanir, þar af fimm sem UNICEF styður, hafa orðið fyrir skemmdum frá því átökin harðnuðu. Þann 2. nóvember var tilkynnt um árás á heilsugæslustöðina Al-Suqyah í Lahj, sem nýtur stuðnings UNICEF og þjónar um 1.700 manns. Fimm létust í árásinni, þar af þrír heilbrigðisstarfsmenn.

Sjá einnig: Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Jemen.

Meira en 330.000 manns, þar af 174.000 börn, hafa þurft að flýja heimili sín frá því hernaðarátök hófust af auknum krafti á ný. Margar fjölskyldur leita skjóls í ófullgerðum eða skemmdum byggingum og eiga erfitt með að nálgast mat, hreint vatn og heilbrigðisþjónustu.

Ástandið í borginni Taiz er sérstaklega alvarlegt. Eftir að aðalvegurinn frá Aden lokaðist og aðrar leiðir urðu ótryggar hafa yfir 800.000 manns misst aðgang að mannúðaraðstoð. Vatnsframleiðsla hefur dregist saman um tæplega helming, verð á matvælum og eldsneyti hefur meira en tvöfaldast og skortur á lyfjum, eldsneyti, súrefni til lækninga og rafmagni ógnar bráðaþjónustu og heilbrigðisþjónustu við mæður og nýbura.

Á svæðum sem átökin hafa haft áhrif á hafa yfir 1.160 skólar lokað eða þurft að stöðva kennslu tímabundið. Það hefur áhrif á meira en hálfa milljón nemenda. Þá greindist um þriðjungur barna sem fædd voru til skoðunar hjá færanlegum heilbrigðisteymum UNICEF með bráða vannæringu. Þrengsli í búðum fyrir fólk á flótta, skortur á salernisaðstöðu og takmarkaður aðgangur að hreinu vatni auka jafnframt hættu á útbreiðslu sjúkdóma.

UNICEF eykur nú neyðaraðstoð sína og hyggst ná til allt að 350.000 manns. Færanleg heilbrigðis- og næringarteymi hafa verið send á ný til fólks á flótta og annarra íbúa á átakasvæðum í Aden, Lahj, Abyan, Marib og Taiz. Jafnframt er stuðningur við vatns- og salernisaðstöðu aukinn og börnum veittur sálfélagslegur stuðningur og einstaklingsmiðuð aðstoð, meðal annars börnum sem eru ein á ferð eða hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar.

„Börn í Jemen hafa þjáðst allt of mikið. Brýnt er að tryggja öruggan og óhindraðan aðgang að mannúðaraðstoð,“ segir Russell. „Allir aðilar verða að virða skyldur sínar samkvæmt alþjóðalögum. Vernda verður börn og tryggja þeim aðgang að nauðsynlegri þjónustu, svo sem heilbrigðisþjónustu, menntun, hreinu vatni og matvælum.“

Í rúman áratug hefur UNICEF á Íslandi staðið fyrir neyðarsöfnun fyrir börnin í Jemen. Þú getur lagt þitt af mörkum svo þau gleymist ekki. Smelltu hér.


Hringdu í 907-3012 og gefðu 3.000 krónur.

Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102050 kennitala: 481203-2950

Við tökum einnig við styrkjum í gegnum AUR appið í númerið 123-787-2332 eða með því að skrifa @jemen

Fleiri
fréttir

19. nóvember 2026

Að minnsta kosti 64 börn hafa verið drepin og 64 særst í Jemen
Lesa meira

18. nóvember 2026

Mislingar breiðast út á ný á svæðum þar sem náðst hafði stjórn á sjúkdómnum
Lesa meira

13. nóvember 2026

Átök og farsóttir auka hungur í Kongó – metfjöldi stefnir í matarskort
Lesa meira
Fara í fréttasafn