Minnst 300 börn hafa verið drepin á Gaza síðustu 300 daga frá því vopnahléi var komið á í október 2025. Talsmaður UNICEF hefur áður gagnrýnt hið meinta vopnahlé harðlega og sú staðreynd að að meðaltali eitt barn á dag hafi verið drepið, síðan samþykkt var að hætta hernaðaraðgerðum og leyfa fullt aðgengi mannúðaraðstoðar fyrir tíu mánuðum síðan, ber þess vitni að vopnahléið sé ekki að skila tilætluðum árangri.
„Vopnahlé þar sem barn er drepið dag hvern er vopnahlé sem er að bregðast börnum,“ segir Edouard Beigbeder, svæðisstjóri UNICEF í Mið-Austurlöndum og N-Afríku. „Hundruð barna til viðbótar hafa særst, mörg hver alvarlega. Börn á Gaza eru enn að bíða eftir þeim friði sem þeim var lofað.“
Fjölskyldum eru nú gert að búa á yfirfullu landsvæði, sem nemur aðeins um þriðjungi Gaza-strandarinnar, þar sem þær hafast við í hættulegum aðstæðum innan um ónýtar byggingar, rústir, uppsafnað sorp og úrgang. Víðs vegar um Gaza stafar börnum enn ógn af bráðavannæringu, sjúkdómum, óhreinu vatni og ónýtu fráveitukerfi.
„Yfirlýsingar síðustu daga eru grunnteikning að næstu skrefum þessa vopnahlés, þar sem talað er um að binda enda á árásir og skala upp mannúðaraðstoð. Þetta veitir nýja von um tækifæri til að hætta að drepa börn,“ segir Beigbeder. „Fyrir börn á Gaza er prófsteinninn á það einfaldur: Mun drápunum linna? Mun nægt magn aðstoðar ná til þeirra? Munu sjúkrahúsin opna á ný með rennandi vatni? Munu börn geta snúið aftur í skóla í september? Börn hafa heyrt þessi loforð áður. Í þetta skiptið verða raunverulegar aðgerðir að fylgja orðum.“
UNICEF ítrekar enn ákall sitt um að staðið verði við skuldbindingar sem kveðið er á um í alþjóðalögum, alþjóðlegum mannúðarlögum og mannréttindalögum. Vernda þarf öll börn, tryggja öruggt aðgengi þeirra að nauðsynlegum vörum og þjónustu, þar á meðal heilbrigðisþjónustu, menntun, hreint vatn, mat, sem og tryggja og stuðla að skjótri og öruggri afhendingu mannúðaraðstoðar til barna í neyð.

