19. júní 2026

Eitt barn á dag: Banvæn blekking vopnahlésins á Gaza

Yfirlýsing James Elder, talsmanns UNICEF, á blaðamannafundi í Palais des Nations í Genf í dag.

Eftirfarandi er yfirlýsing frá James Elder, talsmanni UNICEF, sem staddur er á Gaza:

 „Í marga mánuði hefur heiminum verið sagt að vopnahlé ríki á Gaza. En fyrir palestínsk börn hefur þetta svokallaða vopnahlé reynst grimm og banvæn blekking.

„Frá því að vopnahléið var tilkynnt í október 2025 hafa 265 palestínsk börn verið drepin á Gaza. Það er fráleit og skelfileg tala. Á tímabili sem átti að einkennast af aðhaldi og vernd hefur að meðaltali eitt barn verið drepið á hverjum einasta degi í meira en átta mánuði.

„Við skulum vera skýr um hvað þetta þýðir. Þessi börn voru ekki drepin á vígvelli. Þau voru drepin á heimilum sínum. Í skólunum sínum. Við að spila fótbolta. Við veiðar. Þau voru skotin, sprengd og urðu fyrir árásum frá fjórhreyfla drónum.

„Á meðan heimurinn heldur áfram að tala um vopnahlé halda fjölskyldur á Gaza áfram að jarða syni sína og dætur. En ef barn er drepið á hverjum degi hlýtur umræðan ekki lengur að snúast um gæði vopnahlésins. Hún snýst um trúverðugleika þess að kalla það yfirhöfuð vopnahlé.

„Í þessari viku var tveggja ára drengur skotinn til bana af ísraelskum hersveitum; 13 ára drengur var skotinn til bana inni í tjaldi sínu; fimm ára drengur og faðir hans létust í árás Ísraelshers – og svona heldur þetta áfram.

„Þjáningarnar takmarkast ekki við þau sem hafa látist. Meira en 400 börn hafa særst, mörg með skelfileg áverka og sár sem breyta lífi þeirra til frambúðar. Bara í þessari viku var 12 ára stúlka skotin í brjóstið með byssu sem komið hafði verið fyrir á krana meðan hún var í tjaldi sínu. Þriggja ára stúlka var skotin í andlitið með kúlu frá á meðan hún var inni á heimili sínu. Læknar sinna nú börnum með heilablæðingar, alvarlega áverka á höfði, brjóstkassa og kvið, auk áfalla sem munu hafa áhrif á líf þeirra til framtíðar.

„Lof mér að staldra við og ræða um áföll. Fyrir börn á Gaza hafa ótti, missir og ofbeldi orðið svo stöðugur hluti af tilverunni að áfall er ekki lengur einstakur atburður í lífi þeirra. Það er samofið sjálfri æsku þeirra. Það býr bókstaflega í líkama þeirra. Áföllin eru svo djúpstæð að þau hafa áhrif á getu barna til að borða, sofa og að sjálfsögðu þroskast eðlilega. Mörg börn lifa við svo mikinn ótta og vanlíðan að þau eiga erfitt með að nærast nægilega vel, sem eykur enn frekar vannæringu og gerir þau veikburða og særð á bæði líkama og sál.

„Hundruð barna þurfa tafarlaust á sjúkraflutningi úr landi að halda. Á sama tíma valda takmarkanir á aðgengi að nauðsynlegum lyfjum því að særð börn þurfa að þola meiri sársauka og standa frammi fyrir aukinni hættu á sýkingum, fylgikvillum og frekari aflimunum.

„Við verðum að hætta að sætta okkur við þann fjölda barnadauðsfalla sem myndi vekja alþjóðlega reiði alls staðar annars staðar í heiminum. Við verðum að hætta að gera hið óeðlilega að eðlilegu ástandi. Sú staðreynd að börn geti áfram verið drepin í þessum mæli á meðan vopnahlé er sagt vera í gildi ætti að vera nóg til að vekja áhyggjur allra ríkisstjórna og allra stofnana sem segjast standa vörð um alþjóðalög.

„Áframhaldandi dráp á börnum eru ekki afleiðing þess að úrræði skorti. Þau eru afleiðing skorts á pólitískum vilja. Hver dagur sem líður án ábyrgðar sendir sömu skilaboðin: að hægt sé að taka líf palestínskra barna án þess að nokkur sé dreginn til ábyrgðar. Þetta er ekki lengur bilun í kerfinu – þetta er orðið kerfið sjálft.

„Að lokum vil ég einnig vekja athygli á yfirlýsingu sem UNICEF gaf út á miðvikudag um Líbanon, þar sem 247 börn hafa verið drepin og tæplega 1.000 særst eftir meira en 100 daga aukinna átaka frá 2. mars. Það jafngildir því að að meðaltali séu 12 börn drepin eða limlest á hverjum degi. Tólf börn á dag. Sú staðreynd að við séum enn á ný að reikna út daglegt meðaltal barna sem eru drepin eða særð segir sína eigin hryggilegu sögu. Í Líbanon erum við einnig að tala um tímabil þar sem lýst hefur verið yfir vopnahléi, en börn halda engu að síður áfram að vera drepin. Ekkert vopnahlé getur talist raunverulega marktækt á meðan börn halda áfram að láta lífið. Ofbeldið gegn stúlkum og drengjum verður að taka enda.“

Fleiri
fréttir

19. júní 2026

Eitt barn á dag: Banvæn blekking vopnahlésins á Gaza
Lesa meira

16. júní 2026

Nær helmingur barna heims býr við minnst þrjár samverkandi loftslagshættur
Lesa meira

11. júní 2026

Lamine Yamal nýr velgjörðarsendiherra UNICEF
Lesa meira
Fara í fréttasafn