27. nóvember 2020

50% hærra verð á bóluefnapakkanum á Svörtum föstudegi

Ert þú að leita að tilboði ársins? Langar að klára allar jólagjafirnar en nennir ekki að standa í biðröð? Þá er vefverslun UNICEF á Íslandi - sannargjafir.is - rétti staðurinn fyrir þig!

Bóluefni eru mikið í umræðunni og heimsbyggðin hefur eflaust aldrei verið upplýstari um mikilvægi bólusetninga eins og nú. Í dag, á Svörtum föstudegi, bjóðum við hjá UNICEF á Íslandi því upp á 50% verðhækkun á bólusetningapakkanum á sannargjafir.is og gildir tilboðið einungis í dag.

„Á meðan við bíðum með eftirvæntingu eftir bóluefni gegn kórónaveirunni þá vantar börn víða um heim vörn gegn ýmsum smitsjúkdómum sem við höfum útrýmt hér á Íslandi eða teljum sjálfsagt að við fáum bóluefni við. Á Svörtum föstudegi ákváðum við því að hækka verðið á bólusetningapakkanum okkar um 50% til þess að tvöfalda hjálp okkar við börn í neyð sem eiga rétt á bólusetningum gegn lífshættulegum sjúkdómum. Það hlýtur að vera tilboð ársins!“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi.

UNICEF hefur í áratugi verið leiðandi í bólusetningum fyrir börn og er stærsti einstaki kaupandi bóluefna í heiminum. Á hverju ári bólusetjum við og samstarfsaðilar okkar hátt í helming allra barna í heiminum gegn lífshættulegum sjúkdómum á borð við mislinga, mænusótt, rauða hunda og stífkrampa.

Í bólusetningapakkanum er að finna 50 skammta af bóluefni gegn mænusótt, 50 skammta af bóluefni gegn mislingum, 40 skammta af bóluefni gegn stífkrampa og kælibox til að geyma bóluefnin í. Upphæðin sem er borguð aukalega á Svörtum föstudegi nýtist til að kaupa enn fleiri hjálpargögn fyrir börn í neyð.

Sannar gjafir eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir börn í neyð um allan heim. Í vefverslun UNICEF á Íslandi – sannargjafir.is – er að finna mikið úrval gjafa sem eru tilvaldar í jólapakkann, meðal annars jarðhnetumauk fyrir vannærð börn, moskítónet, hlífðarpakka fyrir heilbrigðisstarfsfólk, námsgögn, handsápur og hlý vetrarföt svo nokkuð sé nefnt.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn