21. apríl 2026

800 börn sýna samstöðu í verki á myndlistarsýningu UNICEF í Hörpu

1 af hverjum 5 börnum í heiminum býr við stríð og sýningin „Fimmta hvert barn“ nær hápunkti sínum í Hörpu á laugardag kl. 11:00   

Veggurinn í Hafnarstræti Hörpu er engin smásmíði en sýningin okkar þekur hann og gott betur.

Fyrir myndlistarsýninguna „Fimmta hvert barn“ fékk UNICEF á Íslandi til liðs við sig rúmlega 800 börn úr 17 Réttindaskólum UNICEF um allt land til að setja saman áhrifamikla upplifun í Hörpu. Sýningunni er ætlað að vekja athygli á því að 520 milljónir barna, eða 1 af hverjum 5 börnum í heiminum, býr nú við stríð og afleiðingar þeirra.  

Sýningin „Fimmta hvert barn“ hófst formlega í dag, 21. apríl, og stendur til 3. maí næstkomandi og er aðgengileg í almannarýminu Hafnarstræti í Hörpu. Við hvetjum öll, sem hafa áhuga á að upplifa þessa myndrænu framsetningu á stöðu barna í heiminum í dag, að koma á sérstakan viðburð okkar laugardaginn 25. apríl klukkan 11:00. Þar mun Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, flytja opnunarræðu. Fulltrúar úr Ungmennaráði UNICEF á Íslandi munu segja nokkur orð og tónlistarmaðurinn Jón Jónsson mætir með gítarinn.    

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi:  

„Undanfarin ár höfum við nær daglega fengið fregnir af stríðsátökum og skelfilegum afleiðingum þeirra. Sú staðreynd að 520 milljónir barna búi við slíkar aðstæður er svo sláandi tölfræði að við náum kannski ekki utan um hana. Það talar aðeins betur til okkar þegar hún er sett í samhengið 1 af hverjum 5 börnum í heiminum. Það er virkilega sláandi, en það sem við vildum gera með sýningunni Fimmta hvert barn var að sýna fólki þessa tölfræði. Að gefa fólki kost á að upplifa hana og sjá með eigin augum. Þetta er nefnilega meira en bara tölfræði. Þarna að baki eru börn af holdi og blóði. Börn með nöfn og drauma. Börn sem bera enga ábyrgð á þessum stríðum, en líða þó alltaf mest fyrir þau. Börn hefja aldrei nein stríð og eiga öll rétt á friði.“  

Sem fyrr segir fengum við ríflega 800 grunnskólabörn í Réttindaskólum UNICEF á Íslandi til liðs við okkur. Börnin fengu fræðslu um stríð og réttindi barna og svo það verkefni að teikna, lita eða skapa mynd af einu barni. Þessum ríflega 800 myndverkum söfnuðum við svo saman og þekja þau nú risastóran vegg í Hafnarstræti Hörpu. Fimmta hvert verk af barni á þessum vegg er svo sérstaklega merkt til að tákna þetta eina barn af hverjum fimm sem býr við hrylling stríðs.   

„Þegar þú sérð þennan fjölda á þessum vegg þá mun það hreyfa við þér. Það mun vekja þig til umhugsunar og vonandi verða til þess að einhver hugsi; hvað get ég gert til að bæta líf þessara barna? Hvernig stend ég með réttindum þeirra? Og síðast en ekki síst; Hvenær hættir heimsbyggðin að líta á dráp á börnum sem eðlilegan fórnarkostnað í stríði?“ segir Birna að lokum.   

Myndirnar á sýningunni eru eftir börn í Álfhólsskóla, Engjaskóla, Flataskóla, Fossvogsskóla, Giljaskóla, Grandaskóla, Háaleitisskóla, Hamraskóla, Hlíðarskóla, Laugarnesskóla, Lundarskóla, Naustaskóla, Síðu­skóla, Smáraskóla, Snælandsskóla, Vatnsendaskóla og Vesturbæjarskóla.   

Fær þetta unga listafólk hjartans þakkir fyrir að kynna sér málið og vera til í að leggja málefninu lið. Sömuleiðis færir UNICEF á Íslandi kennurum og skólastjórnendum þessara skóla þakkir fyrir metnað þeirra og aðstoð.    

Sérstakar þakkir fá einnig Utanríkisráðuneytið og starfsfólk Hörpu fyrir stuðninginn við að láta sýninguna verða að veruleika. 

Fleiri
fréttir

21. apríl 2026

800 börn sýna samstöðu í verki á myndlistarsýningu UNICEF í Hörpu
Lesa meira

15. apríl 2026

UNICEF á Íslandi og utanríkisráðuneytið endurnýja samstarfssamning
Lesa meira

14. apríl 2026

Blóðug byrjun á árinu fyrir börn í Súdan: 160 börn drepin
Lesa meira
Fara í fréttasafn