18. maí 2026

Ævar Þór verður áfram sendiherra UNICEF á Íslandi

Það er landsnefnd UNICEF á Íslandi mikill heiður að fá að njóta krafta Ævars Þórs áfram næstu árin.

Ævar Þór Benediktsson sendiherra og Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Mynd:UNICEF/Laufey

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að rithöfundurinn og leikarinn Ævar Þór Benediktsson verður áfram sendiherra UNICEF á Íslandi til næstu tveggja ára. Ævar varð árið 2021 fyrsti opinberi sendiherra landsnefndar UNICEF á Íslandi, en hann hafði þá um árabil gefið vinnu sína til verkefna okkar og var því vel að titlinum kominn þá líkt og nú. Er þetta í þriðja sinn sem Ævar tekur að sér sendiherrastöðuna og gætum við ekki verið ánægðari með okkar dýrmæta bandamann.

Ævar, sem eins og flest vita hefur helgað starfsferil sinn að stórum hluta börnum bæði í leik og skrifum, segir að hann muni í hlutverki sínu fyrir UNICEF halda áfram að leggja áherslu á menntun, menningu og réttindi barna á flótta.

„Þetta er gríðarlega mikill heiður og ég þakka kærlega fyrir mig. Þessu fylgir sömuleiðis mikil ábyrgð sem ég er spenntur að takast á við. Eins og áður eru mín áhersluatriði menntun, menning og börn á flótta og er ég afskaplega spenntur að vinna með UNICEF að skemmtilegum leiðum til að ná utan um og lyfta þessum mikilvægu málefnum,“ segir Ævar eftir endurnýjun samningsins.

Sendiherrar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, eru í hópi vel þekktra og virtra einstaklinga úr heimi listsköpunar, vísinda, bókmennta, fjölmiðla og íþrótta svo fá dæmi séu nefnd. Sendiherrar UNICEF valdir vegna þeirrar virðingar sem þau njóta og þeirrar mannúðar sem þau sýna í lífi og starfi.

Það er því landsnefnd UNICEF á Íslandi mikill heiður að fá að njóta krafta Ævars Þórs áfram næstu árin.


Fleiri
fréttir

18. maí 2026

Ævar Þór verður áfram sendiherra UNICEF á Íslandi
Lesa meira

06. maí 2026

Hvítt fyrir börn sem biðja um frið
Lesa meira

05. maí 2026

Von í poka fyrir vannærð börn: Kraftaverkamaukið enn að bjarga lífum 30 árum síðar
Lesa meira
Fara í fréttasafn