22. október 2020

Meira en 1,5 milljónir barna í hættu vegna mikilla flóða og aurskriða í Víetnam

Yfir 1,5 milljónir barna eru nú í hættu eftir mikil flóð og aurskriður í fimm héruðum í mið-Víetnam. Flóðin hafa eyðilagt heimili, skóla, heilsugæslustöðvar og uppskeru og hætta er á að börn geti smitast af lífshættulegum sjúkdómum.

Yfir 1,5 milljónir barna eru nú í hættu eftir mikil flóð og aurskriður í fimm héruðum í mið-Víetnam. Flóðin hafa eyðilagt heimili, skóla, heilsugæslustöðvar og uppskeru og hætta er á að börn geti smitast af lífshættulegum sjúkdómum. Að minnsta kosti 135 þúsund fjölskyldur hafa orðið fyrir beinum áhrifum af flóðunum og yfir hálf milljón hefur nú ekki aðgang að öruggu drykkjarvatni.

Nú þegar er búið að tilkynna skemmdir á 42 heilsugæslustöðvum og margar aðrar eru óaðgengilegar vegna flóðvatnsins. Mæður og börn hafa því ekki aðgang að grunn heilsugæslu sem er sérstaklega mikilvæg þegar aukin hætta er á útbreiðslu smitsjúkdóma. Flóðin hafa einnig eyðilagt fjölda skóla sem hefur áhrif á menntun 1,2 milljóna barna.

Hætta á frekari flóðum

Starfsfólk UNICEF á svæðinu vinnur nú með stjórnvöldum í Víetnam við að meta aðstæður og veita neyðaraðstoð. Tíminn er naumur þar sem annar fellibylur nálgast sama strandsvæðið og gæti náð landi á næstu dögum með tilheyrandi úrhelli.

“Flóðin og aurskriðurnar hafa valdið miklum skemmdum í þeim samfélögum sem við höfum náð til. Skólar hafa eyðilagst og bækur og annað námsefni skemmst í flóðvatninu. Íbúar hafa ekki aðgang að rennandi vatni, klósett eru undir vatni og skortur á hreinlætisaðstöðu eykur enn hættuna á smitsjúkdómum á borð við niðurgangspestir,” segir Ly Phat Viet Linh, sérfræðingur UNICEF í neyðaraðgerðum á svæðinu. Í forgangi hjá UNICEF er að tryggja íbúum hreint vatn, hreinlætisaðstöðu og mat og börnum menntun auk þess sem samtökin veita börnum og fjölskyldum þeirra áfallahjálp.

Spár gera ráð fyrir áframhaldandi rigningu á svæðinu og UNICEF fylgist náið með stöðunni í þeim héruðum sem eiga undir högg að sækja. Fyrir flóðin voru íbúar í viðkvæmri stöðu vegna útbreiðslu kórónaveirunnar og því mikilvægt að tryggja öryggi og koma í veg fyrir frekari útbreiðslu veirunnar og annarra sjúkdóma.

Heimsforeldrar UNICEF gera okkur kleift að bregðast strax við þegar neyðaástand skapast líkt og í Víetnam og viljum við hjá UNICEF á Íslandi þakka kærlega fyrir stuðninginn.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn