27. maí 2025

Búum til pláss fyrir börnin í lífi foreldra 

Ísland í 22. sæti af 36 varðandi velferð barna meðal efnameiri ríkja í nýrri skýrslu rannsóknarmiðstöðvar UNICEF, Innocenti.  

Í mörgum efnameiri ríkjum heims hefur námsárangri, andlegri líðan og líkamlegri heilsu barna hrakað síðastliðin fimm ár, samkvæmt nýrri skýrslu rannsóknarmiðstöðvar UNICEF. Skýrslan er hluti af ritröð UNICEF um stöðu barna í efnameiri ríkjum. Þar kemur fram að börn á Íslandi standa vel í samanburði við börn annarra ríkja þegar kemur að líkamlegri heilsu, en síður varðandi andlega heilsu, námsárangur og félagsfærni. Af 36 tekjuháum ríkjum er Ísland í 22. sæti og neðst Norðurlandanna. Efst á listanum eru Holland, Danmörk og Frakkland.  

 UNICEF á Íslandi kynnti niðurstöður skýrslunnar á málþingi sem haldið var í dag í samstarfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Heimili og skóla, landssamtaka foreldra. Í skýrslunni er fjallað um velferð barna og sjónum beint að þróun á líðan og grundvallarfærni barna á tímabili sem nær yfir helstu áhrif Covid-faraldursins. Borin eru saman lykilgögn frá árunum 2018 til 2022. Í skýrslunni kemur fram að tengsl barna við foreldra og fjölskyldu hefur mikil áhrif á líðan þeirra. Niðurstöður fyrir Ísland sýna lækkun milli ára á lífsánægju 15 ára ungmenna. Þá segist rúmlega fjórða hvert ungmenni tala sjaldnar en einu sinni í viku við foreldra sína. 

“Við vekjum athygli á þessum niðurstöðum því um leið og við vitum að foreldrar vilja börnum sínum allt það besta, þá hafa orðið hraðar breytingar á samfélaginu sem skapa nýjar áskoranir í uppeldinu.” segir Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri innanlandsverkefna UNICEF á Íslandi sem stýrði pallborðsumræðum á málþinginu í dag. ”Foreldrar upplifa oft mikið álag og það er ýmislegt í samfélagsgerð okkar sem styður ekki við samveru fjölskyldunnar. Við þurfum að vera gagnrýnni á það.”  

Í skýrslunni er bent á að framfarir í velferð barna í efnameiri ríkjum séu í aukinni hættu vegna hnattrænna atburða og áfalla, eins og af völdum loftslagsbreytinga. Í skýrslunni er varað við því  að veruleg hnignun í námsárangri hafi orðið í mörgum ríkjum og að lífsánægja barna hafi versnaði í flestum ríkjum með aðgengileg gögn. Á Íslandi var lækkunin um 6 prósent milli 2018 og 2022. Japan er eina landið þar sem lífsánægja barna jókst milli mælinga. 

Í pallborðsumræðum á málþinginu í dag var lögð áhersla á að samskipti ungmenna við foreldra sína og félagsleg tengsl sé lykilþáttur í að tryggja góða líðan þeirra en að hraði samfélagsins í dag búi til nýjar áskoranir. Mikilvægt sé því að forgangsraða í þágu barna og auka samverustundir við börn og ungmenni, á þeirra forsendum.  

UNICEF á Íslandi hvetur stjórnvöld og samfélagið allt til að bregðast við þessum niðurstöðum og grípa til aðgerða sem styðja við velferð barna. Að fjölskyldur gefi sér tíma fyrir samveru og samtöl, og að stjórnvöld fjárfesti í stuðningi við foreldra og aukinni foreldrafærni, í samræmi við lög um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.  

Skýrsluna Child Wellbeing in an Unpredictable World með niðurstöðum fyrir Ísland má nálgast hér.  

 

Inger Erla Thomsen, sérfræðingur í málsvarastarfi UNICEF á Íslandi, kynnti niðurstöður skýrslunnar í dag.
Fleiri
fréttir

28. maí 2025

„Tortíming lífs á Gaza“
Lesa meira

27. maí 2025

Búum til pláss fyrir börnin í lífi foreldra 
Lesa meira

21. maí 2025

Búðu til pláss– fyrir ársfund UNICEF á Íslandi 
Lesa meira
Fara í fréttasafn