29. október 2026

„Ferð á markaðinn á aldrei að kosta barn lífið“

Yfirlýsing frá Etleva Kadilli, svæðisstjóra UNICEF í Austur- og Suður-Afríku

„Að minnsta kosti fimm börn á aldrinum 7–14 ára, þrír drengir og tvær stúlkur, eru sögð hafa látið lífið og tvö önnur börn særst í árás vopnaðra dróna á markað í Nyala í Suður-Darfur í Súdan þann 26. október síðastliðinn.

Aðeins viku áður, þann 19. október, bárust fréttir af því að árásir vopnaðra dróna hefðu kostað 80 manns lífið, þar á meðal konur og börn, á fjölförnum markaði í Abyei.

Markaðir eru staðir þar sem fjölskyldur kaupa mat og fólk vinnur fyrir sér. Ferð á markaðinn á aldrei að kosta barn lífið.

Þessar árásir eiga sér stað á sama tíma og árásir vopnaðra dróna valda sífellt meiri skaða meðal barna og almennra borgara í Súdan. Frá janúar til september 2026 var tilkynnt um að meira en 400 börn hefðu látið lífið eða særst, og árásir vopnaðra dróna áttu stóran þátt í mannfallinu. Slíkar árásir hafa einnig skemmt heimili og borgaralega innviði, þar á meðal skóla, heilbrigðisstofnanir, vatnskerfi og markaði.

Fyrir börn í Súdan verður sífellt hættulegra að sinna jafnvel einföldustu daglegu erindum. Börn eiga að geta farið á markað, sótt skóla eða leitað sér heilbrigðisþjónustu án þess að leggja líf sitt í hættu.

Eftir meira en þriggja ára átök þurfa börn í Súdan aukna vernd gegn ofbeldi, ekki nýjar hættur og leiðir fyrir átökin til að ná til þeirra. Dráp á börnum og árásir sem valda þeim meiðslum verður að stöðva.“

Sjá einnig:

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Súdan.

Fleiri
fréttir

29. október 2026

„Ferð á markaðinn á aldrei að kosta barn lífið“
Lesa meira

28. október 2026

Tíu ára afmæli Barnvænna sveitarfélaga UNICEF fagnað á Áhrifadögum ungmenna í Hofi
Lesa meira

27. október 2026

Póstkort frá Perú
Lesa meira
Fara í fréttasafn