11. nóvember 2021

Fordæmir ófremdarástand á landamærunum: „Barn er alltaf barn, burtséð frá aðstæðum“

„Ég lýsi yfir miklum áhyggjum yfir því alvarlega ástandi sem ríkir nú á meðal farandsfólks og hælisleitenda í Evrópu og ytri landamærum Evrópusambandsins,“ segir Afshan Khan, yfirmaður flóttamannahjálpar UNICEF

Börn og fullorðnir þurfa að ferðast í allt að 10 tíma til að komast að næstu uppsprettu vatns sem má finna í Qacha Chalu í miðri Eþíópíu. Vatnið er bæði heitt og salt en þetta er það eina sem er í boði fyrir bæði dýr og menn.

11. nóvember 2021 „Ég lýsi yfir miklum áhyggjum yfir því alvarlega ástandi sem ríkir nú á meðal farandsfólks og hælisleitenda í Evrópu og ytri landamærum Evrópusambandsins,“ segir Afshan Khan, yfirmaður flóttamannahjálpar UNICEF í Evrópu, um ástandið sem myndast hefur milli Hvíta-Rússlands og Evrópusambandsins á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands.

„Nú berast okkur fregnir af því að börn neyðist til að dvelja við skelfilegar aðstæður, séu rekin aftur og haldið við landamærin. Þetta er skýrt brot á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna,“ segir Khan í yfirlýsingu sinni. Börn og fjölskyldur þeirra eiga rétt á því að leita hælis og fá sanngjarna málsmeðferð á einstaklingsbundnum þörfum sínum.“

Khan segir að UNICEF taki undir með systurstofnunum sínum, UNHCR, IOM og OHCHR í að fordæma þær aðgerðir sem gripið hafi verið til gagnvart fólki í austurhluta Evrópu og hvar sem slíkt viðgengst. Þær brjóti gegn alþjóðalögum og setji líf barna í hættu án þess að það sem þeim sé fyrir bestu sé haft að leiðarljósi né að tillit sé tekið til þeirrar hættu sem steðjar að þeim snúi þau aftur heim.

Khan segir þörf á að þjóðarleiðtogar nái þverpólitískri sátt á ný um vernd barna.

„Börn á flótta og í leit að vernd ætti aldrei að nýta í pólitískum tilgangi og tryggja verður réttindi þeirra til að leita sér hælis án undantekninga.“

Í yfirlýsingu sinni segir Khan að UNICEF sé til taks og reiðubúin að vinna með stjórnvöldum Evrópusambandsins, Austur-Evrópu og á vesturhluta Balkan-skaga sem og öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna og hjálparstofnunum til að veita nauðsynlega mannúðaraðstoð, vernd og barnvænar vistarverur fyrir öll börn á alþjóðlegum landamærum.

„Í sameiningu getum við – og verðum– að tryggja að réttinda barna séu tryggð, virt og í hávegum höfð alls staðar. Barn er alltaf barn, burtséð frá aðstæðum.“

Fleiri
fréttir

05. maí 2026

Von í poka fyrir vannærð börn: Kraftaverkamaukið enn að bjarga lífum 30 árum síðar
Lesa meira

04. maí 2026

UNICEF: Innflytjendakerfi og stefna verða að tryggja réttindi barna 
Lesa meira

28. apríl 2026

Hörmungar barna í Darfur meiri í dag en fyrir 20 árum– en fá litla athygli nú
Lesa meira
Fara í fréttasafn