26. febrúar 2021

Fyrstu bóluefnin á Fílabeinsströndinni

Það ríkti mikill spenningur þegar fyrstu skammtarnir af bóluefnum gegn COVID-19 lentu á flugvellinum í Abidjan á Fílabeinsströndinni nú í morgun. Um er að ræða bóluefni á vegum COVAX-samstarfsins.

Ungir sem aldnir tóku þátt í skákmaraþoninu

Það ríkti mikill spenningur þegar fyrstu skammtarnir af bóluefnum gegn COVID-19 lentu á flugvellinum í Abidjan á Fílabeinsströndinni nú rétt fyrir hádegi. Um er að ræða bóluefni á vegum COVAX-samstarfsins - samstarfi 192 landa sem tryggja á jafna dreifingu bólu­efn­is gegn kórónaveirunni meðal efnaminni ríkja heims­ins. Í þessari fyrstu úthlutun fékk Fílabeinsströndin 504.000 skammta af COVID-19 bóluefni og 505.000 sprautur og gert er ráð fyrir að bólusetningar hefjist á mánudag.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, gegnir lykilhlutverki í þessu samstarfi og leiðir innkaup og afhendingu á bóluefnunum til yfir 90 lág- og millitekjuríkja. COVAX-samstarfið vinnur bæði með stjórnvöldum og framleiðendum til að tryggja sanngjarnan aðgang að bóluefnum meðal ríkja heimsins.

UNICEF og AstraZeneca skrifa undir langtíma samning

Markmið COVAX-samstarfsins er að tryggja 2 milljarða skammta af bóluefnum fyrir lok ársins 2021. Eftir margra mánaða undirbúning er margt búið að gerast síðustu daga og bóluefni, sprautur og annar búnaður farinn að berast.

Fyrr í vikunni lentu fyrstu skammtarnir í Ghana, sem varð fyrst ríkja til að fá bóluefni á vegum COVAX-samstarfsins. Í gær, fimmtudag, skrifuðu UNICEF og AstraZeneca undir langtíma samning um afhendingu bóluefnis gegn COVID-19 fyrir hönd COVAX-samstarfsins. Með samningnum mun UNICEF ásamt samstarfsaðilum hafa aðgang að allt að 170 milljónum skammta af bóluefnum gegn COVID-19 fyrir 85 lönd. Þetta er þriðji slíki samstarfssamningurinn sem UNICEF gerir, en áður var búið að skrifa undir samninga við Pfizer og Serum Institute of India. Áætlað er að afhending bóluefnisins hefjist á fyrsta ársfjórðungi 2021.

Auk þess hefur UNICEF hleypt af stokknum mælaborði fyrir bóluefnamarkaðinn sem er gagnvirkt tæki fyrir lönd, samstarfsaðila og framleiðsluiðnaðinn. Þar verður hægt að fylgjast með þróun bóluefna gegn COVID-19 og árangri COVAX-samstarfsins í að tryggja sanngjarnt verð og sanngjarnt aðgengi allra landa í heiminum að bóluefnun. Þetta er gert til að tryggja gagnsæi, skilvirkni og frjálst flæði upplýsinga. Hægt er að skoða mælaborðið hér.

UNICEF tekst á við sögulegt verkefni

Afhending bóluefnanna á Fílabeinsströndinin og í Ghana markar upphafið af fyrstu alþjóðlegu úthlutun bóluefna gegn kórónaveirunni. Fleiri lönd munu bætast í hópinn á næstu dögum og vikum. UNICEF hefur í áratugi verið leiðandi í bólusetningum og er stærsti einstaki kaupandi bóluefna í heiminum. Á hverju ári bólusetja UNICEF og samstarfsaðilar hátt í helming allra barna í heiminum gegn lífshættulegum sjúkdómum og nýtir UNICEF nú sérþekkingu sína til að takast á við þetta sögulega verkefni.

„Til þess að útrýma COVID-19 þarf að útrýma veirunni allsstaðar og tryggja að ekkert land verði skilið eftir. Það er ekki bara það sem rétt að gera heldur það sem þarf að gera. Vernda þarf þau lönd sem hafa veikustu heilbrigðiskerfin gegn veirunni og mikil vinna er því framundan til þess að tryggja að bólusetning meðal heilbrigðisstarfsfólks og viðkvæmra hópa geti hafist í öllum löndum heimsins á fyrstu 100 dögum þessa árs,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi.

Undanfarna mánuði hafa UNICEF og PAHO, í samstarfi við Alþjóðasamtökin um bólusetningar (GAVI), Alþjóðaheilbrigðisstofnunina (WHO) unnið með ríkisstjórnum og flutningsaðilum í að undirbúa komu bóluefnanna. Þetta felur meðal annars í sér aðstoð við að þróa bólusetningaráætlun, stuðning við innviði köldu keðjunnar og þjálfun starfsfólks sem þarf fyrir örugga framkvæmd bólusetninga. Auk þess er búið að koma upp birgðum af sprautum, öryggiskössum, grímum, hönskum og öðrum hlífðarbúnaði.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn