03. maí 2023

Hjólaðu í vinnuna til styrktar Loftslagssjóði UNICEF

ÍSÍ og UNICEF á Íslandi hafa tekið höndum saman í verkefninu Hjólað í vinnuna í ár – Nú getur þinn vinnustaður hjólað til góðs

Andri Stefánsson, framkvæmdarstjóri ÍSÍ, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, og Úlfar Linnet, hjólreiðakappi við setningu Hjólað í vinnuna í dag.

Hjólað í vinnuna var formlega sett í morgun í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík. Í ár hafa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og UNICEF á Íslandi tekið höndum saman í verkefninu þar sem gildi og hugsjón beggja sameinast í að efla einstaklinga og fyrirtæki til heilsueflandi þátttöku fyrir sig, Ísland og heiminn allan.

Með þátttöku í Hjólað í vinnuna, sem stendur frá 3. - 23. maí, geta fyrirtæki nú heitið á starfsfólk sitt og stutt þannig við Loftlagssjóð UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.

Loftlagssjóður UNICEF styrkir meðal annars menntun og fræðslu fyrir börn og ungt fólk varðandi loftlagsáhrif, nýsköpun á sjálfbærum og umhverfisvænum lausnum fyrir heilbrigðis- og menntakerfi og styrkir innviði samfélaga til að auka viðnám við loftslagsbreytingum.

Markmið Hjólum í vinnuna er að huga að daglegri hreyfingu og vekja í leiðinni athygli á virkum ferðamáta því hjólreiðar eru bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland (ÍSÍ) hvetur landsmenn til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu í þessar þrjár vikur og ekki síst taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem Hjólað í vinnuna er. Opnað var fyrir skráningu 19. apríl sl.

Svona tekur þinn vinnustaður þátt

Til að taka þátt í Hjólað í vinnuna þarf eins og venjulega að fara inn á vefsíðu Hjólað í vinnuna og skrá vinnustaðinn til leiks. Í framhaldi af því geta starfsmenn skráð inn lið og skorað á aðra starfsmenn til að taka þátt. Til þess að leggja UNICEF lið eru fyrirtæki hvött til að heita á sitt starfsfólk og greiða upphæð áheita til UNICEF í lok átaksins. Allt fjármagn sem safnast þar inn er merkt Loftlagssjóði UNICEF. Eftir að fyrirtæki hefur skráð sig í Hjólað í vinnuna er það ábyrgðaraðili innan fyrirtækis sem tekur ákvörðun um það hvort fyrirtækið ætlar að vera með í áheitahlutanum og heita á sitt starfsfólk.

UNICEF á Íslandi mun hafa samband við fyrirtæki sem skrá sig til leiks og bjóða þeim að skrá áheit á sitt/sín lið. Jafnframt verður farið yfir það hvernig áheitin skila sér á vettvangi og hvernig best er að hvetja starfsfólk til þátttöku.

Til að fá frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Katrínu Erlu, verkefnastjóra fyrirtækjasamstarfs, með því að senda tölvupóst á katrins@unicef.is eða hringja í síma 552-6300. 

Hjólreiðar eru frábær fararmáti og umhverfsivænn en ekki síst mikilvægur eins og við störf starfsfólks UNICEF á vettvangi víða um heim.

Um Loftslagssjóð UNICEF

Loftlagssjóður UNICEF leggur áherslu á að  finna leiðir að endurnýjanlegri orku og að auka þrautseigju á breyttum tímum í kjölfarið af loftslagsbreytingum til að vernda börn gegn áhrifum umhverfishnignunar og loftslagsbreytinga. Börn eru minnst ábyrg fyrir loftslagsbreytingum en sá hópur sem verður einna mest fyrir áhrifum af þeim. 

UNICEF er í einstaklega góðri stöðu til þess að hafa áhrif á loftslagsbreytingar þar sem við störfum í yfir 190 löndum. Til að innleiða varanlegar langtíma breytingar þurfum við þolinmæði og þrautseigju. Fjármagnið sem fer í loftlagssjóð UNICEF er sveigjanlegt, sem þýðir að sérfræðingar okkar hafa frelsi til nýsköpunar og frelsi til að bregðast við breyttum þörfum á vettvangi. Sveigjanleikinn gerir sérfræðingum UNICEF einnig kleift að vinna þar sem þörfin og áhrifin eru mest.

Nánari upplýsingar hér á vefsíðu UNICEF á Íslandi.

Fleiri
fréttir

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira

11. apríl 2024

Þrjár ungar stúlkur létu lífið undan ströndum Grikklands
Lesa meira
Fara í fréttasafn