28. apríl 2026

Hörmungar barna í Darfur meiri í dag en fyrir 20 árum– en fá litla athygli nú

Tuttugu árum eftir að ástandið í Darfur-héraði Súdan vakti heimsathygli og reiði með tilheyrandi viðbrögðum alþjóðasamfélagsins eru aðstæður barna þar í dag enn verri en þá

Mynd: UNICEF/UNI781069/Jamal

Tuttugu árum eftir að ástandið í Darfur-héraði Súdan vakti heimsathygli og reiði með tilheyrandi viðbrögðum alþjóðasamfélagsins eru aðstæður barna þar í dag enn verri en þá- en viðbrögðin láta á sér standa. Fálæti og skortur á mannúðaraðstoð en nú það sem mætir börnum í Súdan.

Þetta kemur fram í nýrri velferðarviðvörun UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem ber yfirskriftina „Darfur: 20 Year On, Children Under Threat.“

Sjá einnig: Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Súdan.

Skýrslan dregur fram hvernig áframhaldandi átök í Súdan, sem hófust fyrir fjórum árum, hafa valdið umfangsmiklum ofbeldisverkum, valdið bráðum hungurvanda, gríðarlegum fólksflótta og skelfilegum brotum gegn börnum víðs vegar um Darfúr. Líkt og árið 2005 hafa heimili verið brennd, ráðist á markaði, skóla og heilbrigðisstofnanir og fjölskyldur neyðst til að flýja heimili sín. Umfang neyðarinnar í dag er miklu meiri, en viðbrögð alþjóðasamfélagsins gjörólík.

Sagan má ekki endurtaka sig

Skýrslan dregur skýrar hliðstæður milli stöðunnar í dag og fyrstu Darfur-skýrslu UNICEF frá árinu 2005, reiði alþjóðasamfélagsins varð til þess að víðtæk mannúðaraðstoð barst. Tuttugu árum síðar hafa þarfir barna aukist bæði að umfangi og flækjustigi, en skortur á fjármagni, takmarkaður aðgangur, breytt eðli hernaðar og lítil alþjóðleg athygli takmarka verulega umfang lífsbjargandi aðstoðar.

„Fyrir tuttugu árum sameinaðist heimurinn í reiði yfir þjáningum barna í Darfur. Í dag lifir ný kynslóð barna við skelfilegt ofbeldi, hungur og ótta,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, í tilkynningu.

„Við megum ekki leyfa sögunni að endurtaka sig. Börn í Darfur þurfa vernd og varanlegan aðgang að mannúðaraðstoð. Aðilar að þessum átökum verða að binda enda á þetta grimmilega stríð.“

Ástandið fer versnandi

Frá upphafi stríðsins hafa Sameinuðu þjóðirnar staðfest meira en 5.700 alvarleg brot gegn börnum víðs vegar um Súdan, sem hafa haft áhrif á að minnsta kosti 5.100 börn, þar af yfir 4.300 sem hafa verið drepin eða limlest. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs voru að minnsta kosti 160 börn drepin og 85 særð, sem er veruleg aukning miðað við sama tímabil í fyrra.

Þrátt fyrir gífurlegar áskoranir halda UNICEF og samstarfsaðilar áfram að veita lífsbjargandi aðstoð í Darfur og nágrannalöndum, þar á meðal menntun, hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, meðferð við alvarlegri vannæringu hjá börnum, stuðning við hreyfanlega heilbrigðisþjónustu, sálfélagslegan stuðning og uppbyggingu öruggra svæða fyrir börn.

UNICEF hvetur sem fyrr alla aðila að átökunum til að virða alþjóðalög og vernda almenna borgara, þar á meðal börn; tryggja öruggan og óhindraðan aðgang mannúðaraðstoðar; og stöðva og fyrirbyggja alvarleg brot gegn börnum. UNICEF skorar einnig á styrktaraðila að veita sveigjanlegt, langtímafjármagn til að halda uppi lífsbjargandi verkefnum og styðja börn sem hafa verið hrakin á flótta yfir landamæri.

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Súdan.

Fleiri
fréttir

28. apríl 2026

Hörmungar barna í Darfur meiri í dag en fyrir 20 árum– en fá litla athygli nú
Lesa meira

21. apríl 2026

800 börn sýna samstöðu í verki á myndlistarsýningu UNICEF í Hörpu
Lesa meira

15. apríl 2026

UNICEF á Íslandi og utanríkisráðuneytið endurnýja samstarfssamning
Lesa meira
Fara í fréttasafn