29. mars 2023

Hvalfjarðarsveit ætlar að verða Barnvænt sveitarfélag

Gleðidagur fyrir sveitarfélagið við undirritun samninga í dag.

Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar og Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, við undirritun í dag.

Í dag var undirritaður samningur við Hvalfjarðarsveit um að verða 22. sveitarfélagið til að hefja vinnu við verkefnið Barnvæn sveitarfélög UNICEF sem stutt er af mennta- og barnamálaráðuneytinu. Sveitarfélagið mun nú hefja vinnu við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með markvissum hætti í alla sínu stjórnsýslu og starfsemi með stuðningi frá UNICEF á Íslandi.

Í Hvalfjarðarsveit eru í dag 154 börn á aldrinum 0-18 ára og sagði Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri við undirritun að komandi verkefnum í hinu ört vaxandi sveitarfélagi væri mætt með mikilli tilhlökkun. Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, hélt stutta kynningu á Barnvænum sveitarfélögum og ræddi um mikilvægi Barnasáttmálans þegar hann er hafður til grundvallar öllu starfi og stefnumótun sveitarfélaga.

UNICEF á Íslandi óskar öllum börnum og íbúum Hvalfjarðarsveitar til hamingju með daginn og velfarnaðar á komandi vegferð.

Nánar um verkefnið Barnvæn sveitarfélög

Meðal þeirra markmiða sem sveitarfélög vinna að í verkefninu er að:

  • að auka þekkingu barna og fullorðinna á réttindum barna
  • að auka tækifæri barna til þess að tjá skoðanir sínar og hafa áhrif á málefni og ákvarðanir sveitarfélagsins sem hafa áhrif á börn
  • að auka jafnræði með því að afla gagna um velferð barna og byggja á þeim
  • að koma því inn í verklag og stefnur að það sem er barninu fyrir bestu sé sett í forgang þegar teknar eru ákvarðanir sem hafa áhrif á börn
  •  að gera úrbætur á umhverfi og þjónustu sveitarfélagsins út frá barnvænni nálgun

Sveitarfélög móta sér aðgerðaáætlun þar sem aðgerðum sem snúa að þessum markmiðum er forgangsraðað. Þegar allar aðgerðir hafa verið unnar getur sveitarfélagið sótt um viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag. Verkefnið er hugsað sem hringrás en ekki átaksverkefni en það er eilífðarverkefni að hlúa að réttindum barna. Þannig felur viðurkenning UNICEF ekki í sér vottun, heldur er hún staðfesting á því að átt hafi sér stað ákveðin vinna, réttindum barna til hagsbóta. Í dag hafa tvö sveitarfélög hlotið viðurkenninguna, Akureyri árið 2020 og Kópavogur 2021.

Verkefnið Barnvæn sveitarfélög er hluti af opinberri stefnu um Barnvænt Ísland sem Alþingi hefur samþykkt en markmiðið er að öll sveitarfélög innleiði Barnasáttmálann á markvissan hátt. Mikilvægt að öllum sveitarfélögum standi til boða markviss ráðgjöf og fræðsla við innleiðinguna og því styður hið opinbera við verkefnið Barnvæn sveitarfélög.

Nánari upplýsingar um Barnvæn sveitarfélög eru aðgengilegar á vefsíðu verkefnisins.  

Fleiri
fréttir

27. mars 2024

Níu ár af stríði í Jemen: Milljónir barna vannærð
Lesa meira

15. mars 2024

Þrettán ár af stríði í Sýrlandi: UNICEF aðstoðaði milljónir í fyrra en þörfin aldrei meiri
Lesa meira

13. mars 2024

Sögulegur árangur í baráttunni gegn barnadauða
Lesa meira
Fara í fréttasafn