Hópur þjóðþekktra Íslendinga leggur UNICEF á Íslandi lið til að hvetja landsmenn til að standa með börnum í neyð og gerast Heimsforeldrar UNICEF í skugga niðurskurðar margra af stærstu ríkjum heims til mannúðar- og þróunaraðstoðar.
Ævar Þór Benediktsson, Lóa Hjálmtýsdóttir, Guðrún Pétursdóttir, Edda Hermannsdóttir, Toshiki Toma, Sólmundur Hólm og Kristófer Acox eiga það öll sameiginlegt að hafa verið Heimsforeldrar UNICEF um árabil og leggja nú fram krafta sína til að vekja athygli á þeirri grafalvarlegu stöðu sem fordæmalaus niðurskurður fjölmargra þjóða til mannúðaraðstoð skapar, undir yfirskriftinni „Hver mun standa með börnum?“ .
Látum rödd okkar heyrast – fyrir öll börn
„Það passar vel að íbúar á Íslandi láti rödd sína heyrast nú sem aldrei fyrr gegn því alþjóðlega neyðarástandi sem ákvarðanir þessara ríkja skapar fyrir börn. Einmitt vegna þess að íslenska ríkið hefur á undanförnum misserum farið fram með góðu fordæmi og aukið við kjarnaframlög sín til UNICEF á sama tíma og aðrar þjóðir hafa dregið þar úr. Ísland á líka flesta Heimsforeldra UNICEF miðað við höfðatölu og framlag landsnefndar UNICEF á Íslandi er hlutfallslega hæst allra landsnefnda í heiminum,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
„Ný heimsmynd ógnar nú lífsnauðsynlegum uppbyggingarverkefnum, neyðaraðstoð, þjónustu og réttindaverkefnum stofnana eins og UNICEF í þágu milljóna barna um allan heim. Stórveldi beina nú pólitískum áherslum sínum að vopnuðum átökum, vígbúnaðarkapphlaupi og alþjóðlegri efnahagslegri refskák en snúa þannig á sama tíma baki við þeim börnum sem þurfa þennan stuðning til að lifa af. Heimsforeldrar geta brúað þetta bil og á sama tíma tekið skýra afstöðu með mannúð, von og kærleika í þágu barna í neyð þegar umheimurinn bregst,“ segir Birna.
Minnst 20% tekjusamdráttur hjá UNICEF á heimsvísu
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, áætlar minnst 20% samdrátt í tekjum árið 2026 til nauðsynlegrar mannúðar- og þróunaraðstoðar og barnaréttindaverkefna frá því sem var árið 2024. Ef við setjum það í samhengi aðeins út frá næringarverkefnum þá áætlar UNICEF að áhrifin jafngildi því að 15 milljónir barna og mæðra muni búa við skert og raskað aðgengi að næringarþjónustu með tilheyrandi hættu á vannæringu, sjúkdómum og dauðsföllum.
Eitt af hverjum sex börnum í heiminum í dag búa við afleiðingar stríðs, niðurskurður ríkja í framlögum til stofnana eins og UNICEF gæti skapað 40% skort til neyðaraðstoðar í Austur- og suðurhluta Afríku, 35% í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku, 30% í Vestur- og Mið-Afríku og nærri 50% í rómönsku Ameríku og Karíbahafi.
Meira en tölur á blaði
„Þetta eru ekki aðeins tölur á blaði. Að baki þeim eru líf milljóna barna, mæðra og fjölskyldna sem svipt verða tækifærum, réttindum og lífsnauðsynlegri þjónustu fyrir vikið. Því spyrjum við, hver mun standa með réttindum barna þegar alþjóðasamfélagið bregst? Hver mun láta sig það varða að börn sem á þurfa að halda fái að borða svo þau deyi ekki úr vannæringu? Að þau fái hreint vatn, vernd, skjól, heilbrigðisþjónustu og menntun? Það gera Heimsforeldrar UNICEF með mánaðarlegum framlögum sínum til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna,“ segir Birna.
Hvað gera Heimsforeldrar UNICEF?
Með mánaðarlegum framlögum sínum mynda Heimsforeldrar UNICEF öryggisnet fyrir öll börn sem þurfa á lífsnauðsynlegri mannúðaraðstoð að halda í heiminum. Með mánaðarlegu framlagi sínu tryggja Heimsforeldrar ekki aðeins að UNICEF getur sinnt verkefnum í þágu réttinda og velferðar barna í yfir 190 löndum og sjálfbærrar langtímauppbyggingar jaðarsettra samfélaga, heldur brúa þau bilið sem niðurskurður sem þessi hefur í för með sér. Með því að gerast Heimsforeldri tekur þú afstöðu með réttindum barna, þú stendur með börnum sem þurfa á stuðningi að halda og þú leggur þitt af mörkum svo UNICEF geti t.d. haldið áfram að sinna rúmlega 400 neyðaraðstæðum á ári um allan heim og verið til staðar fyrir börn sem enga sök eiga á því ástandi sem þau búa við. En líða þó ávallt mest fyrir það.
Margt smátt gerir eitt stórt og í sameiningu gera Heimsforeldrar UNICEF heiminn að betri stað fyrir milljónir barna.
Því spyrjum við nú, sem aldrei fyrr:
Vilt þú standa með börnum, þegar heimsbyggðin bregst?