Að minnsta kosti 42 þúsund börn í tveimur héruðum suðurhluta Malaví munu njóta góðs af samstarfsverkefni íslenska ríkisins og UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í næringarmálum sem nýlega fór af stað. Vannæring er ein helst ógnin við líf og velferð barna í Malaví og er Afríkuríkið eitt það fátækasta í heimi.
Vannæring langt yfir neyðarmörkum
Næringarátakið kemur í kjölfar þess að forseti Malaví lýsti yfir neyðarástandi í október 2025 og er samstarfsverkefni UNICEF og íslenska ríkisins ætlað að bregast við alvarlegum fæðuskorti og vannæringu barna í héruðunum Mwanza og Neno. Svæðin hafa orðið illa úti vegna fæðuskorts tengdum loftslagsbreytingum.
Samkvæmt upplýsingum frá UNICEF í Malaví er áætlað að 45% íbúa Neno búi við fæðuóöryggi en 35% í Mwanza. Í báðum héruðum hefur alvarleg rýrnun, hættulegasta birtingarform vannæringar hjá börnum, verið mikið vandamál og áhyggjuefni. Innlögn barna á sjúkrahús vegna alvarlegrar bráðavannæringar hafa sömuleiðis ítrekað farið langt yfir neyðarmörk.
Verkefnið, sem stutt ef af íslenska ríkinu, miðar að því að veita næringarríkar máltíðir daglega og bæta skimun fyrir vannæringu hjá 42 þúsund börnum frá sex mánaða aldri til fimm ára í 370 samfélagsreknum umönnunarmiðstöðvum og nærsamfélögum þeirra.
Kemur á mikilvægum tíma
Íhlutunin beinist ekki einungis að forvörnum og meðferð vannæringar heldur einnig að því að efla notkun staðbundinna, næringarríkra matvæla til að takast á við vægari tilfelli vannæringar. Jafnframt verður stuðningur við meðferð alvarlegrar vannæringar barna undir fimm ára aldri auk barnshafandi og brjóstagjafandi kvenna aukinn. Skimun á samfélagsstigi, styrking tilvísanakerfa og efling næringaráætlana í umönnunarmiðstöðvunum (e. Community-Based Care Centres eða CBCC) mun tryggja að börn fái tímanlega og samfellda þjónustu.
„Þessi neyðaraðgerð kemur á afar mikilvægum tíma fyrir Malaví,“ segir dr. Penelope Campbell, fulltrúi UNICEF í Malaví. „Vannæring er enn ein stærsta ógnin við líf barna og loftslagsbreytingar gera fjölskyldum sífellt erfiðara fyrir. Með stuðningi Íslands náum við til þeirra barna sem eru í mestri hættu í dag og styrkjum jafnframt kerfi sem munu vernda þau til frambúðar.“
Ísland hefur verið þróunarsamstarfsaðili Malaví í 36 ár og skuldbindur sig nú til að styðja við börn og fjölskyldur í viðkvæmri stöðu.
„Þetta samstarf snýst um meira en bráðaaðstoð, það snýst um að efla staðbundin kerfi og byggja upp sjálfbærni til lengri tíma,“ er haft eftir Erlu Hlín Hjálmarsdóttur, aðstoðarforstöðumanns íslenska sendiráðsins í Malaví, í tilkynningu UNICEF. „Í ljósi síversnandi afleiðinga loftslagshamfara er forgangsatriði hjá okkur að tryggja að lífsnauðsynleg næring berist til barna þar sem þörfin er mest en um leið að styrkja þá samfélagslegu innviði sem vernda þau.“
Lykilþættir verkefnisins:
· Máltíðir fyrir börn 3-5 ára. Verkefnið styður veitingu heitra máltíða fyrir börn í CBCC-miðstöðvunum. Á hungurtímabilinu, sem er tímabilið milli uppskera þar sem síðasta uppskera hefur klárast og ný er ekki tilbúin, reynist matvælaöflun erfið og leiðir til þess að meirihluti miðstöðvanna loka með tilheyrandi afleiðingum á börn. Með almennri fæðuaðstoð er gert ráð fyrir að draga megi úr rýrnun meðal barna í héruðunum tveimur á þessu hungurtímabili.
· Forvarnir gegn vannæringu. Bætt næringarráðgjöf fyrir mæður, nýbura og ungbörn auk bættu eftirliti og skimunum í samfélögum og heilbrigðisstofnunum.
· Snemmbær greining og tilvísun barna með rýrnun. Verkefnið mun styðja heilbrigðiseftirlitsfulltrúa við að efla snemmgreiningu barna með rýrnun í CBCC-miðstöðvum og nærsamfélögum. Börn með alvarlega rýrnun verða vísað á næstu heilbrigðisstofnun til meðferðar.
· Efling heilbrigðisþjónustu í nærumhverfi: Þjálfun og búnaður fyrir heilbrigðiseftirlitsfulltrúa og sjálfboðaliða í samfélögum til að greina, vísa áfram og fylgja eftir tilfellum vannæringar.
· Loftslagsþolin næringarþjónustu. Stuðningur við héruðin og samfélög til að viðhalda næringarþjónustu í þurrkum, flóðum og öðru loftslagstengdu neyðarástandi.
Þakka Íslandi stuðninginn
Stjórnvöld í Malaví fagna framtakinu, segja það samræmast forgangsmarkmiðum ríkisins í næringarmálum og eru íslenskum stjórnvöldum þakklát fyrir stuðninginn.
„Þetta samstarfsverkefni við Ísland er gríðarmikilvægt. Að styrkja næringarþjónustu hjálpar til við að tryggja heilsu og þroska barna okkar, sérstaklega á tímum áfalla tengdum loftslagsmálum,“ segir Nedson Fosiko, yfirmaður næringarmála hjá ríkisstjórn Malaví.
Malaví stendur áfram frammi fyrir vaxandi loftslagstengdum áskorunum sem auka fæðuóöryggi og hættu á alvarlegri vannæringu. Efling næringarkerfa er áfram lykilatriði til að draga úr barnadauða, styðja við heilbrigðan vöxt og þroska og hjálpa fjölskyldum að standast áföll vegna loftslagsbreytinga í framtíðinni.
Í Malaví búa rúmlega 21,6 milljónir einstaklinga og 51% þeirra eru 18 ára eða yngri. 75,4% landsmanna eru undir fátæktarmörkum sem miðast í dag við 3 dollara á dag.
Vissir þú að í ríkjum Afríku getur kostnaður vegna vannæringar numið allt frá þremur og upp í sextán prósent af verg landsframleiðslu. En hver dollari sem fjárfest er í aðgerðum til að bæta næringu barna skilar 16 dollara efnahagslegum ávinningi til baka.

