09. október 2025

Krónan styrkir söfnun UNICEF fyrir börn á Gaza 

Krónan býður viðskiptavinum að styrkja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi við innkaup í verslunum sínum næstu daga. Krónan jafnar hvert framlag.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, og Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Krónan mun bjóða viðskiptavinum sínum að styðja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi þar sem allur ágóði mun renna til aðstoðar barna á Gaza. Söfnunin stendur yfir dagana 9. til 19. október og fá þá viðskiptavinir tækifæri til að bæta við 500 krónum eða meira í lok innkaupa í öllum verslunum Krónunnar. Upphæðin sem safnast mun renna óskert til söfnunarinnar og ætlar Krónan að jafna hvert framlag viðskiptavina, krónu á móti krónu. 

„Við hjá UNICEF á Íslandi erum þakklát að enn á ný sé Krónan að stíga upp til að standa með réttindum barna sem búa við neyð.“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. „Við vitum að framtakið mun mælast vel fyrir hjá viðskiptavinum Krónunnar og vonum að þetta verði öllum hvatning að leggja sitt af mörkum, því þegar kemur að mannúðaraðstoð á Gaza skiptir hver mínúta máli. UNICEF er í þeirri stöðu að geta skipt sköpum í lífi barna sem búa við hörmulega neyð og til að mæta þörfinni þarf fjárhagslegan stuðning og því skiptir hver króna máli.“ 

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar segir að það sé Krónunni bæði ljúft og skylt að nýta lausnir sínar til að safna fyrir jafn þörfu málefni og þessu, og á sama tíma leggja sitt af mörkum til aðstoðar barna í neyð. 

„Það er erfitt að setja sig í spor barna sem búa við hungur, ótta og óöryggi dag eftir dag og nú eru yfir 130 þúsund börn undir fimm ára aldri á Gaza alvarlega vannærð. Við í Krónunni viljum leggja okkar af mörkum með því að virkja samfélagið okkar til góðra verka. Með hjálp viðskiptavina okkar getum við staðið saman og látið hvert framlag vega tvöfalt – krónu á móti krónu,“ segir Guðrún. 

Nánar má lesa um neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn á Gaza hér.  

Fleiri
fréttir

09. október 2025

Hver mínúta skiptir máli fyrir börn á Gaza
Lesa meira

09. október 2025

Krónan styrkir söfnun UNICEF fyrir börn á Gaza 
Lesa meira

08. október 2025

Tvö ár af helvíti á Gaza: 64 þúsund börn látin og særð
Lesa meira
Fara í fréttasafn