26. maí 2026

Leiðtogar UNICEF hittast á ársfundi: Ísland er miðstöð mannréttinda næstu daga 

Landsnefndir UNICEF funda í Reykjavík – Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, kemur til landsins – Ræðir við forseta Íslands og kynnir sér Réttindaskóla og -frístund með ráðherra.  

Ársfundur leiðtoga allra landsnefnda UNICEF verður haldinn í Reykjavík í vikunni. Þar koma saman framkvæmdastjórar og stjórnarformenn landsnefnda UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, víðs vegar að úr heiminum til að stilla saman strengi sína í stórum málum og taka sameiginlegar ákvarðanir um framtíðina. Næstu daga verður Ísland því sannkölluð miðstöð barnaréttinda þar sem mannúð, mannréttindi og þátttaka verða í fyrirrúmi.  

Á fundinum skoða landsnefndir UNICEF og forsvarsmenn UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, framtíðarsýn, stefnumál, frammistöðu og skilvirkni. Ljóst er að vegna niðurskurðar ríkja til þróunaraðstoðar og víðtækra áhrifa þeirra hefur hlutverk landsnefnda aldrei verið mikilvægara í fjáröflun í þágu verkefna UNICEF á heimsvísu.  

Einn af hápunktum vikunnar er svo fyrsta opinbera heimsókn Catherine Russell, framkvæmdastjóra UNICEF, til Íslands þar sem hún mun m.a. eiga í pallborðsumræðum við frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.   

Russell mun í heimsókn sinni einnig heimsækja Vesturbæjarskóla, einn af Réttindaskólum UNICEF á Íslandi, og kynna sér það frábæra starf sem þar er unnið í krafti Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og réttinda barna. Með í för í þeirri heimsókn verður Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Ísland stendur sig sérstaklega vel í innleiðingu á alþjóðlegu verkefnunum Barnvæn Sveitarfélög og Réttindaskólar og - frístund UNICEF. Því mun fara fram á fundinum sérstök kynning á verkefnunum en einnig kynning á samlegðaráhrifum innleiðingar Barnasáttmálans og farsældarlaganna (lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna). Þátttakendur í þeirri kynningu verða m.a. fulltrúar frá ungmennaráði Reykjanesbæjar sem munu fjalla um starfsemi ungmennaráða sveitarfélaga, hvaða áhrif þátttaka sveitarfélaga í Barnvænum sveitarfélögum hefur á starfsemi ráðsins og áhrif þeirra innan sveitarfélagsins.

Fleiri
fréttir

26. maí 2026

Leiðtogar UNICEF hittast á ársfundi: Ísland er miðstöð mannréttinda næstu daga 
Lesa meira

18. maí 2026

Ævar Þór verður áfram sendiherra UNICEF á Íslandi
Lesa meira

06. maí 2026

Hvítt fyrir börn sem biðja um frið
Lesa meira
Fara í fréttasafn