04. september 2020

Miklar áskoranir í menntamálum í Beirút

UNICEF kallar eftir auknum stuðningi við neyðaraðgerðir í Beirút, höfuðborg Líbanon, til þess að tryggja að öll þau börn sem ættu að hefja nýtt skólaár síðar í mánuðinum geti notið réttinda sinna til menntunar.

Ekki fleiri börn í hafið! Ekki fleiri börn viðskila við fjölskyldur sínar. Ekki fleiri börn strand á landamærum. Ekki fleiri árásir á skóla, leikskóla, barnaspítala og óbreytta borgara. Ekki fleiri börn sem glata barnæsku sinni.

UNICEF kallar eftir auknum stuðningi við neyðaraðgerðir í Beirút, höfuðborg Líbanon, til þess að tryggja að öll þau börn sem ættu að hefja nýtt skólaár síðar í mánuðinum geti notið réttinda sinna til menntunar. Nú er mánuður liðinn frá mannskæðu sprengingunum í borginni sem meðal annars eyðilögðu 183 skólabyggingar.

Fjöldi heimila gjöreyðilögðust í sprengingunum, fjölskyldur hafa neyðst til að flytja í tímabundin úrræði og börnin þar með takmarkaðan aðgang að sjónvarpi, útvarpi eða nettengingu fyrir fjarkennslu. Fjölskyldur sem misstu heimili sín og lífsviðurværi standa einnig frammi fyrir fjárhagslegum hindrunum til styðja við menntun barna sinna. Ofan á það bætist útbreiðsla kórónaveirunnar sem veikir enn frekar tækifæri barna til náms, nema brugðist sé við.

Að tryggja menntun barna er forgangsatriði hjá UNICEF. Skólinn er ekki eingöngu staður til að læra. Skólinn getur til að mynda veitt börnum stöðugleika og daglega rútínu og hjálpað börnum að vinna úr sálrænum áföllum sem þau hafa orðið fyrir, líkt og er raunin meðal fjölda barna í Beirút eftir sprengingarnar. Um 600 þúsund börn búa í 20 kílómetra radíus frá sprengingunum og mörg þeirra sýna greinileg einkenni áfallastreitu og kvíða.

Stórauka þarf stuðning til menntamála

UNICEF sendi í dag frá sér stöðuskýrslu um áhrif sprenginganna á börn og fjölskyldur og neyðaraðgerðir samtakanna í kjölfarið. Með skýrslunni biðlar UNICEF til alþjóðasamfélagsins að stórauka stuðning sinn til menntamála til þess að tryggja að börn í Beirút geti hafið nýtt skólaár.

UNICEF og samstarfsaðilar vinna nú að því að endurbyggja skólabyggingar og búa þær nýjum tækjum og húsgögnum, þjálfa kennara í að veita sálrænan stuðning, útdeila námsgögnum og hjálpa við að tryggja sóttvarnir. UNICEF vinnur einnig að því að finna nýstálegar lausnir fyrir fjarkennslu með auknu aðgengi að raftækjum og nettengingu.

UNICEF á Íslandi hefur staðið fyrir neyðarsöfnun til að bregðast við hörmungunum í Beirút og almenningur á Íslandi brást strax við. UNICEF vill þakka þeim fjölmörgu einstaklingum sem hafa lagt söfnuninni lið, sem og heimsforeldrum, fyrir að taka þátt í að bæta líf barna með okkur á hverjum degi!



Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn