Drónaárásir voru gerðar á framhaldsskóla og heilsugæslustöð í þorpinu Shukairi í White Nile-ríki í Súdan í gærmorgun. Að minnsta kosti átta nemendur létust, þar af fjórir yngri en 18 ára, auk heilbrigðisstarfsmanns. Margir særðust og skólum á svæðinu hefur verið lokað í kjölfarið.
„Þessi árás er gróft brot á rétti barna til öryggis og verndar,“ segir Sheldon Yett, fulltrúi UNICEF í Súdan. „Hún minnir á sársaukafullan hátt á hve hrikaleg áhrif þessi átök hafa á börn. Skólar eiga alltaf að vera öruggir staðir þar sem börn geta lært, þroskast og átt sér framtíðarvonir. Aldrei má gera árásir á þá.“
Skólar og sjúkrahús eru borgaraleg mannvirki sem njóta verndar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum og eiga að vera öruggir staðir. Allir aðilar átaka verða að virða skyldur sínar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum, vernda almenna borgara – þar á meðal börn – og tryggja að heimili, skólar, heilbrigðisstofnanir, vatns- og hreinlætiskerfi og önnur þjónusta sem börn reiða sig á verði aldrei fyrir árásum.
Frá því að núverandi átök brutust út um miðjan apríl 2023 hefur verið greint frá að minnsta kosti 200 árásum á skóla og sjúkrahús í Súdan. Þær hafa svipt ótal börn öruggum stöðum til náms og aðgangi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.
UNICEF á Íslandi minnir á neyðarsöfnun okkar fyrir börn í Súdan. Smelltu hér.

