03. mars 2022

Mun jafna öll framlög í Úkraínusöfnun UNICEF að 15 milljónum króna

UNICEF á Íslandi er það sönn ánægja að tilkynna að við höfum fengið staðfestingu frá velunnara samtakanna hér á landi, sem óskar nafnleyndar, að öll framlög í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Úkraínu verða jöfnuð af viðkomandi upp að alls 15 milljónum króna.

3. mars 2022 UNICEF á Íslandi er það sönn ánægja að tilkynna að við höfum fengið staðfestingu frá velunnara samtakanna hér á landi, sem óskar nafnleyndar, að öll framlög í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Úkraínu verða jöfnuð af viðkomandi upp að alls 15 milljónum króna.

„Það er gríðarlega verðmætt fyrir fjáröflun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Úkraínu að vita að hvert framlag sem nú berst telur í raun tvöfalt, þökk sé þessari ótrúlegu gjöf,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

„Orð ná vart yfir það hversu þakklát við erum velgjörðarmanni okkar sem vill að styrkur hans nýtist sem best í þágu réttinda barna í Úkraínu. Við vonum að þetta göfuglyndi reynist öllum landsmönnum og fyrirtækjum hér á landi hvatning til að styðja við börn og fjölskyldur í Úkraínu sem nú eiga um sárt að binda og þurfa tafarlausa aðstoð,“ segir Birna.

Framlög í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fara til að veita nauðsynlega mannúðaraðstoð í Úkraínu og nágrannalöndunum þar sem UNICEF er að setja upp barnavæn svæði fyrir börn og fjölskyldur á flótta.

Fyrr í vikunni tilkynnti Krónan að verslunarkeðjan myndi bjóða viðskiptavinum sínum að bæta 500 krónum við innkaup sín til styrktar söfnuninni, sem verslunin mun síðan jafna krónu fyrir krónu.

Til að styðja neyðarsöfnun vegna þessara umfangsmiklu verkefna UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Úkraínu getur þú lagt þitt af mörkum með eftirfarandi hætti.

■ Þú getur sent SMS-ið UNICEF í númerið 1900 til að styrkja um 1.900 kr.

■ Þú getur millifært frjáls framlög inn á reikning: 701-26-102060 kt. 481203-2950

■ Þú getur greitt með greiðslukorti á heimasíðu okkar, unicef.is/ukraina

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn