20. júní 2025

UNICEF: Sláandi aukning í fjölda vannærðra barna á Gaza

Rúmlega fimm þúsund börn greindust með vannæringu bara í maí - Að meðaltali 112 börn á dag meðhöndluð vegna vannæringar það sem af er ári

Frá næringarmiðstöð UNICEF í Khan Yunis á Gaza. Mynd: UNICEF/UNI804938/El Baba

5.119 börn á aldrinum sex mánaða til 5 ára voru lögð inn til meðferðar vegna bráðavannæringar á Gaza í síðasta mánuði. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, segir að um sláandi aukningu sé að ræða.

Samkvæmt gögnum sem fengin eru frá næringarmiðstöðvum UNICEF víðsvegar um Gaza-ströndina er um að ræða nærri 50% aukningu tilfella í maí frá því í aprílmánuði. Þá voru 3.444 börn lögð inn til meðferðar við vannæringu sem á var 150% aukning frá því í febrúar þegar vopnahlé var í gildi og mannúðaraðstoð var að gerast til Gaza í einhverjum mæli.

Af þeim 5.119 börnum sem fengu meðferð í maí voru 636 börn með alvarlega bráðavannæringu (SAM), sem er hættulegast form vannæringar. Þessi börn þurfa viðvarandi meðferð undir eftirliti, hreint og öruggt aðgengi að vatni og heilbrigðisþjónustu til að lifa af. Allt þetta er af skornum skammti á Gaza í dag. Fjöldi barna með alvarlega bráðavannæringu á Gaza hefur rokið upp um 146% síðan í febrúar síðastliðnum.

112 börn á dag

„Á aðeins 150 dögum, frá upphafi þessa árs til loka maí, hafa 16.736 börn, eða 112 börn á dag að meðaltali, verið lögð inn til meðferðar vegna vannæringar á Gaza,“ segir Edouard Beigbeder, svæðistjóri UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.

„Hvert einasta þessara tilfella er hægt að koma í veg fyrir. Matar-, vatns- og næringarsendingarnar sem þau þurfa svo nauðsynlega til að lifa af eru hins vegar hindraðar og ná ekki til þeirra. Ákvarðanir um slíkt eru mannanna verk og eru að kosta börn lífið. Ísrael verður tafarlaust að leyfa víðtækan innflutning lífsbjargandi mannúðaraðstoðar um allar landamærastöðvar,“ segir Beigbeder.

Birgðir sem næst að afhenda dropi í hafið

UNICEF hefur á síðustu þremur vikum tekist að afhenda hundruð bretta af nauðsynlegum birgðum til að koma í veg fyrir og meðhöndla vannæringu, en þörfin er slík að þær reynast aðeins dropi í hafið. Birgðir eru að þrotum komnar.

Átökin hafa sem kunnugt er eyðilagt flesta mikilvæga innviði, hvort heldur sem eru vatnsveitur, fráveitu- og hreinlætiskerfi eða í heilbrigðisþjónustu sem hefur takmarkað getu hjálparstofnana til að meðhöndla vannæringu. Aðeins 127 af 236 næringarstöðvum eru starfhæfar, ýmist vegna tilmæla um nauðungarflutninga eða linnulausra árása.

Eldsneyti SÞ að þrotum komið

Sameinuðu þjóðirnar hafa á sama tíma greint frá því að eldsneyti stofnunarinnar er við það að klárast. Frá lokum vopnahlés hefur mannúðarsamtökum ítrekað verið neitað um að ferja nýjar eldsneytisbirgðir inn á Gaza eða fá aðgang að þeim birgðum sem til staðar eru þar.

Þetta hefur beinar afleiðingar á börn og fjölskyldur því án eldsneytis verður að hætta nauðsynlegri þjónustu eins og vatnsframleiðslu og heilbrigðisþjónustu, eða nota óhreint og óöruggt vatn. Og hreint vatn skiptir máli. Nú þegar er bráðaniðurgangur 1 af hverjum 4 tilfellum sjúkdóma á Gaza. Grunur er einnig um tilfelli lifrarbólgu A, sem er bæði bráðsmitandi og banvæn. Með hlýnandi veðri á komandi vikum mun ástandið aðeins versna, að sögn UNICEF. 

Vítahringur dauða

Án viðeigandi ráðstafana og meðhöndlunar skapa vannæring og sjúkdómar banvænan vítahring og það fljótt. Vannærð börn eru móttækilegri og viðkvæmari fyrir hvers kyns banvænum sjúkdómum eins og bráðaniðurgangi sem aftur eykur á heilsuleysi og vannæringu barna og stofnar lífi þeirra í hættu ef hann verður viðvarandi ástand.

„Þetta er áríðandi viðvörunarmerki. Tafarlaust og samstillt átak þarf til að stöðva stigmögnun hungursneyðar, aukningu í vannæringu, útbreiðslu sjúkdóma, vatnsleysi og á endanum koma í veg fyrir dauða barna af orsökum sem hægt er að koma í veg fyrir,“ segir Beigbeder. „Mannúðaraðstoð og viðskiptaaðföngum verður að leyfa tafarlaust um allar landamærastöðvar til skjótrar, öruggrar og mannsæmandi afhendingar til fjölskyldna í neyð, hvar svo sem þær eru.“

Heimsforeldrar UNICEF standa með börnum þegar heimsbyggðin snýr baki við neyð þeirra.

Stattu með börnum og komdu í hóp Heimsforeldrar til að leggja þitt af mörkum mánaðarlega.

Fleiri
fréttir

20. júní 2025

UNICEF: Sláandi aukning í fjölda vannærðra barna á Gaza
Lesa meira

16. júní 2025

UNICEF fordæmir dráp á börnum í hættulegri stigmögnun í Mið-Austurlöndum
Lesa meira

12. júní 2025

Hver mun standa með börnum þegar heimsbyggðin bregst?
Lesa meira
Fara í fréttasafn