09. nóvember 2023

Starfsfólk N1 styrkir neyðarsöfnun UNICEF á Gaza um 5 milljónir

Forstöðumaður hjá N1 hvetur fyrirtæki til að styðja við þau góðgerðarsamtök sem stunda óeigingjarnt starf í eldlínunni á átakasvæðum.

Meðfylgjandi mynd er tekin á vettvangi frá úthlutun UNICEF á neyðargögnum. Mynd/UNICEF

Orkufélagið N1 mun láta fimm milljónir króna renna til neyðarsöfnunar UNICEF á Íslandi vegna átakanna á Gaza, en starfsfólk félagsins velur árlega mikilvægt málefni fyrir jólin til að styrkja. Forstöðumaður markaðssviðs N1 vonar að styrkurinn verði öðrum fyrirtækjum á Íslandi hvatning til að slást í hópinn. Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi hrósar N1 fyrir að fara fram með góðu fordæmi enda sé ljóst að neyð um milljón barna á Gaza sé mikil.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur unnið við afar erfiðar og hættulegar aðstæður við að tryggja börnum og íbúum Gaza nauðsynlega mannúðaraðstoð í yfirstandandi átökum. Bæði hefur verið unnið að því að dreifa þeim hjálpargögnum sem voru til staðar sem og að útvega og dreifa hjálpargögnum og nauðsynjum síðan átök hófust. Tugir vörubíla á vegum UNICEF hafa flutt vatn, neyðarbirgðir, sjúkragögn, lyf, skýli fyrir fólk á flótta og aðrar nauðsynjar yfir Rafah-landamærin frá 21. október. UNICEF hefur margítrekað kröfu sína um tafarlaust vopnahlé og að vernd allra barna sé tryggð sem og óhindraður og öruggur aðgangur mannúðarstofnana að íbúum Gaza, en um helmingur þeirra eru börn.

Silja Mist Sigurkarlsdóttir, forstöðumaður markaðssviðs N1:

„Hörmungarnar á Gaza hafa ekki látið starfsfólk N1 ósnortið. Það er þyngra en tárum taki að fylgjast með neyð allra þessara barna sem hafa ekkert sér til saka unnið og því vildum við leggja okkar af mörkum. Við vitum að UNICEF mun miðla styrknum þangað sem hann nýtist best og við hvetjum fleiri fyrirtæki til að styðja við þau góðgerðarsamtök sem stunda óeigingjarnt starf í eldlínunni á átakasvæðum.“

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi:

„Það er svo margt sem fyrirtæki geta gert til að láta gott af sér leiða og þarna stígur N1 fram með veglegan styrk þangað sem neyðin er mest. Við erum þakklát og stolt að taka við styrknum og vitum að hann mun nýtast til lífsbjargandi verkefna á Gaza. Vonandi verður framtakið einnig til þess að fleiri fyrirtæki líti sér nær og gefi slíka styrki til góðra málefna – þörfin er svo sannarlega til staðar á þessum síðustu vikum fram að jólum.“

Hafi önnur fyrirtæki eða einstaklingar áhuga á að fylgja fordæmi N1 og styðja við gott málefni bendir UNICEF á Íslandi á neyðarsöfnun sína vegna átakanna á Gaza:

Söfnunarreikningur fyrir börn á Gaza: 701-26-102015 Kennitala 481203-2950

Einnig bendum við á Almenna neyðarsjóðinn þar sem hægt er að styrkja starfsemi UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vegna neyðar barna víða um heim.

Söfnunarreikningur fyrir Almenna neyðarsjóðinn: 0701-26-102020 Kennitala: 481203-2950

Til að fá nánari upplýsingar um frekari styrktarleiðir og einstakar neyðarsafnanir bendum við á heimasíðuna okkar, unicef.is eða að hafa samband í unicef@unicef.is

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn