12. maí 2021

Stöðva verður ofbeldi gegn börnum!

Staðfest er að að minnsta kosti níu börn voru drepin í loftárásum á Gaza í gær og fjölmörg slösuðust illa.

UNICEF fordæmir árásir á börn og óbreytta borgara í Palestínu. Staðfest er að að minnsta kosti níu börn voru drepin í loftárásum á Gaza í gær og fjölmörg slösuðust illa. Um helgina slösuðust 29 palestínsk börn, mörg mjög alvarlega, og átta börn voru handtekin í átökum í Jerúsalem. Að minnsta kosti þrír skólar hafa verið eyðilagðir, einn í Ísrael og tveir á Gaza.

Átök hafa mikil og langvarandi áhrif á börn og ofbeldi og óöryggi gagnvart börnum í Palestínu hefur staðið yfir allt of lengi. Binda þarf endi á ofbeldið og tryggja öryggi óbreyttra borgara, þá sérstaklega barna, og sleppa tafarlaust öllum börnum sem eru nú í haldi lögreglu. Öll börn eiga sama rétt!

Fleiri
fréttir

02. mars 2026

UNICEF: Virðið alþjóðleg mannúðar- og mannréttindalög
Lesa meira

26. febrúar 2026

Íslenska ríkið og UNICEF taka höndum saman í baráttunni gegn vannæringu í Malaví
Lesa meira

24. febrúar 2026

Úkraína: Þriðjungur barna enn á vergangi fjórum árum eftir innrásina
Lesa meira
Fara í fréttasafn