10. febrúar 2026

Svona hefur samstarf Íslands og UNICEF jákvæð áhrif í Úganda

Stuðningur við mæður á unglingsaldri og vatns-, hreinlætis- og salernisverkefni í skólum og heilsugæslustöðvum – Íslenska ríkið er fyrirmyndarstyrktaraðili UNICEF

Að aðstoða mæður á unglingsaldri við að rjúfa vítahring fátæktar og tryggja börnum þeirra þjónustu sem stuðlar að þroska þeirra og framförum. Þetta er eitt þeirra verkefna UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Úganda sem íslenska ríkið styður með framlögum sínum. Verkefnið fór af stað í árslok 2024 og hefur nú verið framlengt til næstu fjögurra ára. Um árabil hefur íslenska ríkið svo stutt dyggilega við bakið á vatns- og hreinlætisverkefnum í landinu. Það er svona sem Ísland og UNICEF hafa jákvæð áhrif á líf og velferð barna og fjölskyldna í einu fátækasta ríki heims, Úganda.

Studdar til að brjótast úr fátækt

Ísland hefur frá árslokum 2024 verið bakhjarl verkefnis UNICEF um stuðning við mæður á unglingsaldri og börn þeirra í tveimur héruðum í vesturhluta landsins, Kyegegwa og Kikuube. Þar eru unglingsmæður studdar við að brjótast úr fátækt um leið og ung börn þeirra fá þjónustu sem stuðlar að þroska þeirra og velferð. Þetta er gert með skilyrtum fjárframlögum og foreldrafræðslu til mæðranna og leikskólaaðgangi fyrir börnin auk þess sem þau yngstu gangast undir ungbarnaeftirlit. 

Ein af hverjum fjórum unglingsstúlkum í Úganda á aldrinum 15-19 ára er annað hvort þunguð, eða orðin móðir og mörg dæmi um ennþá yngri stúlkur sem eignast börn. Þessum hópi er sérstaklega hætt við að festast í fátæktargildru sem erfist síðan frá einni kynslóð til annarrar. Um helmingur þeirra sem njóta aðstoðarinnar er fólk á flótta frá átakasvæðum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó.

Í myndbandinu hér fyrir ofan má meira um þetta samstarfsverkefni í Úganda.

Aðgengi að hreinu vatni

Sendiráð Íslands í Kampala hefur nú einnig undirritað samning við UNICEF um lokaáfanga vatns- og hreinlætisverkefnis á flóttamannasvæðum í norðurhluta landsins. Verkefnið hófst árið 2019 og á þeim tíma hefur vatns- og hreinlætisaðstaða tekið stakkaskiptum í 69 skólum og 17 heilsugæslustöðvum, sem samanlagt veita um 124.000 einstaklingum þjónustu, þar af 74.000 börnum. Lokaáfanginn miðar sérstaklega að því að tryggja sjálfbærni verkefnisins til framtíðar, meðal annars með þjálfun heimamanna í viðhaldi á mannvirkjum og búnaði. Auk þess verður aðgangur að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu bættur í átta grunnskólum og tveimur heilsugæslustöðvum og gert er ráð fyrir viðhaldi og endurbótum þar sem þess er þörf.

Alþjóðlegt samstarf í heimsklassa

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er skilgreind sem ein af fjórum lykilstofnunum utanríkisráðuneytisins í marghliða þróunarsamvinnu Íslands og er samstarf íslenska ríkisins við UNICEF afar gott og náið. Það er sömuleiðis ávallt ánægjulegt fyrir landsnefnd UNICEF á Íslandi að segja frá því að íslenska ríkið er einmitt álitið fyrirmyndarstyrktaraðili UNICEF. Er það vegna hárra kjarnaframlaga ríkisins og mikils stuðnings miðað við höfðatölu. Því á sama tíma og fjölmarga þjóðir hafa dregið úr framlögum sínum til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, þróun sem UNICEF hefur varað við afleiðingunum af, hefur íslenska ríkið á sama tíma farið fram með góðu fordæmi og aukið sín framlög.

Fleiri
fréttir

10. febrúar 2026

Svona hefur samstarf Íslands og UNICEF jákvæð áhrif í Úganda
Lesa meira

28. janúar 2026

UNICEF ætlar að gefa hundruð þúsunda barna á Gaza tækifæri til að læra
Lesa meira

23. janúar 2026

UNICEF fær loks að færa börnum á Gaza leikföng
Lesa meira
Fara í fréttasafn