22. apríl 2021

Sýrland fær fyrstu bóluefnaskammtana í gegnum COVAX-samstarfið

Sýrland fékk i gær fyrstu skammtana af bóluefnum gegn kórónaveirunni. Um er að ræða bóluefni á vegum COVAX-samstarfsins - samstarfi 192 landa sem tryggja á jafna dreifingu bólu¬efn¬is gegn kórónaveirunni meðal efnaminni ríkja heims¬ins.

Sýrland fékk i gær afhenta fyrstu skammtana af bóluefnum gegn kórónaveirunni. Um er að ræða bóluefni á vegum COVAX-samstarfsins - samstarfi 192 landa sem tryggja á jafna dreifingu bólu­efn­is gegn kórónaveirunni meðal efnaminni ríkja heims­ins. Í þessari fyrstu úthlutun fékk Sýrland 256.800 skammta af COVID-19 bóluefni og eru fleiri skammtar væntanlegir á næstu vikum..Þessir fyrstu skammtar verða gefnir heilbrigðisstarfsfólki í framlínu, þar á meðal í norðurhluta landsins þar sem átök geisa enn og fjöldi fólks er á vergangi.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, gegnir lykilhlutverki í COVAX-samstarfinu og leiðir innkaup og afhendingu á bóluefnunum til yfir 90 lág- og millitekjuríkja. COVAX-samstarfið vinnur bæði með stjórnvöldum og framleiðendum til að tryggja sanngjarnan aðgang að bóluefnum meðal ríkja heimsins.

Bóluefnin ljós í myrkri eftir áratuga stríð

„Bóluefnin eru ljós í myrkrinu fyrir íbúa Sýrlands. Þau munu gera heilbrigðisstarfsfólki kleift að halda áfram að veita lífsnauðsynlega aðstoð í landi þar sem heilbrigðiskerfið er að hruni komið eftir áratuga átök,“ segir Ted Chaiban, svæðisstjóri UNICEF í Miðausturlöndum.

Skráð COVID-19 tilfelli í Sýrlandi eru nú 51.580 en talið er að raunveruleg tala smitaðra sé mun hærri. Átök hafa geisað í landinu í yfir 10 ár og búnaður og aðstaða til skimana er mjög takmarkaður. Afhending bóluefnanna er því mikilvægur liður í að hefta útbreiðslu veirunnar í landinu en heilbrigðisstarfsfólk landsins þarf mun meiri stuðning til þess að geta haldið áfram að hjálpa þeim mikla fjölda fólks sem er í viðkvæmri stöðu. Eins þarf að tryggja bóluefni fyrir elda fólk og áhættuhópa sem allra fyrst.

COVAX-samstarfið gengur út á að tryggja jafnan aðgang að bóluefnum fyrir öll lönd í heiminum og markmiðið er að tryggja 2 milljarða skammta af bóluefnum fyrir lok ársins 2021. UNICEF hefur í áratugi verið leiðandi í bólusetningum og nýtir nú sérþekkingu sína til að takast á við þetta sögulega verkefni.

Á meðan sú vinna heldur áfram, þar á meðal að koma bóleufnum til stíðshrjáðra ríka í á borð við Jemen og Sýrland, kallar COVAX-samstarfið eftir jafnari dreifingu bóluefna. Ríkari lönd heimsins ættu að deila auka skömmtum með COVAX-samstarfinu til þess að hægt sé að ná að bólusetja fleiri sem fyrst. Til þess að útrýma COVID-19 þarf nefnilega að útrýma veirunni allsstaðar í heiminum og tryggja að ekkert land verði skilið eftir.

Fleiri
fréttir

27. maí 2026

Áhrifamikið og gott samtal forseta Íslands og framkvæmdastjóra UNICEF
Lesa meira

26. maí 2026

Leiðtogar UNICEF hittast á ársfundi: Ísland er miðstöð mannréttinda næstu daga 
Lesa meira

18. maí 2026

Ævar Þór verður áfram sendiherra UNICEF á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn