06. mars 2026

Talið að 180 börn hafi verið drepin í árásum á Íran

UNICEF lýsir þungum áhyggjum af áframhaldandi og stigvaxandi hernaðarþunga

„UNICEF hefur miklar áhyggjur af banvænum áhrifum áframhaldandi hernaðarlegrar stigmögnunar í Íran á börn. Talið er að um 180 börn hafi þegar verið drepin og mörg fleiri slasast,“ segir í yfirlýsingu frá UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.

„Meðal fórnarlambanna eru 168 stúlkur sem létust þegar árás lenti á stúlknaskólanum Shajareh Tayyebeh í Minab, í suðurhluta Írans, þann 28. febrúar á meðan kennsla stóð yfir. Samkvæmt upplýsingum voru flest þeirra sem létust skólabörn á aldrinum 7 til 12 ára. Að auki létust 12 börn í öðrum skólum á fimm mismunandi stöðum víðs vegar um Íran.“

„Dauði þessara barna er sláandi áminning um hversu mikil grimmd fylgir stríði og ofbeldi gegn börnum. Nokkuð sem hefur áhrif á fjölskyldur og samfélög til frambúðar.“

„Börn og skólar njóta verndar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum og skólar eiga að vera öruggir staðir.“

„Þar sem árásir halda áfram víðs vegar um heimshlutann verða börn sífellt berskjaldaðri fyrir ofbeldi og áhrif skemmda á nauðsynlegum innviðum hefur beinar afleiðingar á velferð þeirra. Að minnsta kosti 20 skólar og 10 sjúkrahús hafa verið skemmd í Íran með tilheyrandi truflun á aðgengi barna að námi og nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.“

„UNICEF ítrekar ákall sitt um að allir aðilar virði skuldbindingar sínar samkvæmt alþjóðalögum og tryggi vernd almennra borgara. Samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum á ALLTAF að vernda líf og velferð barna.“

„UNICEF fylgist áfram náið með stöðunni og er tilbúið að veita mannúðaraðstoð fyrir börn og fjölskyldur.“


Fleiri
fréttir

06. mars 2026

Talið að 180 börn hafi verið drepin í árásum á Íran
Lesa meira

04. mars 2026

Börn bera þungann af árásum á Líbanon
Lesa meira

02. mars 2026

UNICEF: Virðið alþjóðleg mannúðar- og mannréttindalög
Lesa meira
Fara í fréttasafn