28. október 2026

Tíu ára afmæli Barnvænna sveitarfélaga UNICEF fagnað á Áhrifadögum ungmenna í Hofi

Akraneskaupstaður var eitt þeirra sveitarfélaga sem hlaut viðurkenningu Barnvænna sveitarfélaga á síðasta ári.

Dagana 28.-29. október verða Áhrifadagar ungmenna haldnir í Hofi á Akureyri. Ráðstefnan er haldin í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög sem UNICEF á Íslandi hefur unnið að í samstarfi við íslensk sveitarfélög til að styðja innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Á ráðstefnunni koma saman fulltrúar ungmennaráða, starfsfólk sveitarfélaga og sérfræðingar til að vinna að lausnum í málefnum sem börn og ungmenni hafa lagt áherslu á. Meðal viðfangsefna eru hvernig styrkja megi samstarf ungmennaráða og sveitarstjórna, auka aðgengi barna að fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi og tryggja jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á vegum sveitarfélaga.

Dagskráin spannar tvo daga og byggir meðal annars á hópavinnu, kynningum og pallborðsumræðum þar sem þátttakendur vinna saman að því að þróa hugmyndir og lausnir sem geta nýst sveitarfélögunum.

Akureyrarbær var fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að hljóta viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag árið 2020. Viðurkenningin var endurnýjuð árið 2024 og nú er stefnt að því að fá hana endurnýjaða á ný árið 2027.

Fulltrúar UNICEF og ungmennaráða mættu í viðtal í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun og er hægt að hlusta á það hér á vef RÚV.

Fleiri
fréttir

28. október 2026

Tíu ára afmæli Barnvænna sveitarfélaga UNICEF fagnað á Áhrifadögum ungmenna í Hofi
Lesa meira

27. október 2026

Póstkort frá Perú
Lesa meira

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira
Fara í fréttasafn