28. maí 2025

„Tortíming lífs á Gaza“

Svæðisstjóri UNICEF í Mið-Austurlöndum ómyrkur í máli – Lýsir ástandinu sem ólýsanlegum hrylling – 50 þúsund börn sögð hafa verið drepin eða særð á Gaza síðan árásir hófust

27. maí 2025. Yfirlýsing Edouard Beigbeder, svæðisstjóra UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku:


„Á 72 klukkustundum um helgina bárust myndir úr tveimur hræðilegum árásum sem sýna enn einu sinni svívirðilegan kostnað þessa miskunnarlausa stríðsreksturs gegn börnum á Gaza.“

„Á föstudag sáum við myndbönd af brenndum og sundurlimaðum líkum barna úr al-Najjar fjölskyldunni þar sem þau voru dregin úr rústum heimilis þeirra í Khan Younis. Af tíu systkinum undir tólf ára aldri er einungis eitt barn talið hafa lifað af og var það alvarlega slasað.“

„Aðfaranótt mánudags sáum við myndir af litlu barni fast innan í brennandi skóla í Gaza-borg. Sú árás, sem átti sér stað snemma morguns, er talin hafa banað minnst 31, þar af 18 börnum.“

„Þessi börn – hvers líf ættu aldrei að vera bara tölur á blaði – eru nú orðin hluti af langri, sársaukafullri upptalningu ólýsanlegra hörmunga: alvarlegra brota gegn börnum, hindrana á afhendingu hjálpargagna, hungurs, stöðugra nauðungarflutninga og eyðileggingu sjúkrahúsa, vatnskerfa, skóla og heimila. Í grunninn, tortíming lífs á Gaza-svæðinu.“

„Frá því að vopnahléinu lauk 18. mars síðastliðinn hafa 1.309 börn verið drepin og 3.738 slasast. Alls eru nú yfir 50.000 börn sögð hafa verið drepin eða særð síðan í október 2023. Hversu mörg börn þurfa að deyja? Hversu miklar hörmungar þurfa að berast í beinni útsendingu áður en alþjóðasamfélagið bregst virkilega við, nýtir áhrif sín og grípur til afgerandi aðgerða til að binda endi á þetta miskunnarlausa barnamorð?“

„UNICEF ítrekar enn og aftur að allar stríðandi fylkingar verði að binda enda á ofbeldið, vernda óbreytta borgara, þar á meðal börn, virða alþjóðleg mannúðar- og mannréttindalög, heimila tafarlausa afhendingu mannúðaraðstoðar og leysa alla gísla úr haldi.“

„Börnin á Gaza þurfa vernd. Þau þurfa mat, vatn og lyf. Þau þurfa vopnahlé. En umfram allt þurfa þau tafarlausa og sameiginlega aðgerð til að binda enda á þetta – í eitt skipti fyrir öll.“

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn á Gaza

Fleiri
fréttir

28. maí 2025

„Tortíming lífs á Gaza“
Lesa meira

27. maí 2025

Búum til pláss fyrir börnin í lífi foreldra 
Lesa meira

21. maí 2025

Búðu til pláss– fyrir ársfund UNICEF á Íslandi 
Lesa meira
Fara í fréttasafn