Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, var í þriggja daga heimsókn í Sýrlandi þar sem hún lagði áherslu á að börn yrðu í forgrunni við uppbyggingu landsins á sama tíma og fjölskyldur snúa heim.
Milljónir Sýrlendinga eru nú að snúa aftur til heimkynna sinna, en Russell lagði áherslu á að stuðningur við börn og fjölskyldur verði að vera forgangsverkefni í umbreytingu og uppbyggingu Sýrlands. Þar sé meðal annars mikilvægt að tryggja aðgengi að menntun, heilbrigðisþjónustu, hreinu og öruggu vatni og verndarþjónustu.
Russell fundaði með fulltrúum stjórnvalda og öðrum samstarfsaðilum og áréttaði skuldbindingu UNICEF um að styðja við börn og ungt fólk víðs vegar um Sýrland. Á fundunum var einkum rætt um þarfir fjölskyldna sem snúa heim, endurreisn grunnþjónustu og aukna fjárfestingu í börnum og ungmennum.
Í heimsókninni hitti Russell börn og fjölskyldur í samfélögum sem eru í uppbyggingu á ný eftir margra ára átök. Í sveitum Damaskus heimsótti hún skóla sem hefur verið endurbyggður, heilsugæslustöð fyrir mæður og börn og endurbætta vatnsveitu. Þar stuðlar þjónusta sem UNICEF styður að því að fjölskyldur fái á ný aðgang að nauðsynlegri menntun, heilbrigðisþjónustu og vatni.
„Í meira en áratug hefur saga Sýrlands að mestu verið sögð út frá átökum, missi og fólksflótta. Nú erum við farin að sjá sögu um seiglu og von,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, í fréttatilkynningu. „Ég hitti börn og fjölskyldur sem eru komin heim til að byggja líf sitt upp að nýju. Nú er rétti tíminn til að setja börn í forgrunn við uppbygginguna og fjárfesta í þeirri heilbrigðisþjónustu, menntun og vatnsþjónustu sem þau þurfa til að skapa sér bjartari framtíð og bjartari framtíð fyrir Sýrland.“
Frá því í desember 2024 er talið að um 1,67 milljónir flóttafólks hafi snúið aftur til Sýrlands frá nágrannalöndum og að 1,9 milljónir sem voru á vergangi innanlands hafi snúið aftur, flest til sinna heimabyggða. Milljónir eru enn á vergangi og margar fjölskyldur snúa nú aftur til samfélaga þar sem grunnþjónusta og innviðir hafa orðið fyrir miklum skemmdum eftir margra ára átök.
Mannúðarþörfin er enn gríðarleg. Milljónir barna þurfa áfram á aðstoð að halda og samfélög sem taka á móti fjölskyldum sem snúa heim finna fyrir vaxandi álagi á skóla, heilbrigðisþjónustu, vatnskerfi og verndarþjónustu.
UNICEF kallar eftir viðvarandi stuðningi við börn í Sýrlandi með sveigjanlegri, fyrirsjáanlegri og langtímafjármögnun. Áframhaldandi fjárfesting er nauðsynleg til að efla mennta-, heilbrigðis-, vatns- og barnaverndarkerfi, styðja við samfélög sem taka á móti fjölskyldum sem snúa heim og tryggja að hvert einasta barn fái tækifæri til að lifa af, dafna og þroskast.
UNICEF hvetur sýrlensk stjórnvöld til að setja réttindi og þarfir barna í forgrunn þegar framtíð Sýrlands er mótuð. Langtímafjárfesting í börnum er grundvöllur þess að byggja upp samfélög og leggja traustan grunn að sjálfbærri þróun landsins til framtíðar.


