„Ofbeldisverk víðs vegar um Mið-Austurlönd um helgina er vísbending um hættulega stigmögnun sem að venju mun bitna verst á börnum,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í yfirlýsingu í dag.
„Síðan á föstudag hafa hernaðaraðgerðir gegn Íran og Ísrael beinst að íbúðabyggð með þeim afleiðingum að óbreyttir borgarar, þar á meðal börn, hafa látið lífið og skemmdir hafa orðið á borgaralegum innviðum.“
„Fyrir utan mannfallið veldur þessi óhugnanlega stigmögnun miklum ótta og andlegu álagi hjá börnum í öllum samfélögum.“
„UNICEF fordæmir harðlega allt ofbeldi gegn börnum og hugur okkar er hjá öllum þeim fjölskyldum og samfélögum sem eiga um sárt að binda núna.“
„Við tökum undir með Aðalritara Sameinuðu þjóðanna um að allir aðilar sýni ítrustu aðgæslu, haldi aftur af sér og forðist með öllum leiðum að sökkva þessum heimshluta enn dýpra í viðjar stríðsátaka og dauða. Það eru aðstæður sem hvorki heimshlutinn né börn þar mega við.“
„UNICEF ítrekar sömuleiðis ákall sitt um að allir aðilar virði skyldur sínar gagnvart alþjóðalögum um vernd óbreyttra borgara og sérstaklega barna. Öll börn eiga rétt á því að lifa laus við ógnir stríðs og ofbeldis.
„UNICEF, ásamt öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna og mannúðarsamtökum, metur nú stöðuna og er reiðubúið að auka aðstoð við börn og fjölskyldur þeirra eftir þörfum og óskum.“
–Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF